Bæjarráð - 3802
- Kl. 08:15 - 11:25
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3802
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Heimir Örn Árnason
- Hlynur Jóhannsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Sunna Hlín Jóhannesdóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Inga Þöll Þórgnýsdóttirbæjarlögmaður ritaði fundargerð
Metanframleiðsla 2023
Málsnúmer 2023030592Eyþór Björnsson forstjóri Norðurorku og Sunna Guðmundsdóttir verkefnastjóri umhverfis- og loftslagsmála hjá Norðurorku mættu á fundinn og kynntu stöðu metanframleiðslu. Þá mættu á fundinn gegnum fjarfundarbúnað bæjarfulltrúarnir Andri Teitsson og Hulda Elma Eysteinsdóttir.
Bæjarráð þakkar Eyþóri Björnssyni og Sunnu Guðmundsdóttur fyrir kynninguna.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2023-2026 - viðauki
Málsnúmer 2022042596Lagður fram viðauki 1.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir viðauka 1 og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Reglur um styrkveitingar Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2022011232Lögð fram drög að endurskoðuðum reglum um styrkveitingar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs, Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og skipulagssviðs og Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn.
Stefna Amtsbókasafnsins 2023-2025
Málsnúmer 2023030416Lögð fram stefna og drög að aðgerðaáætlun Amtsbókasafnsins 2023-2025.
Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og skipulagssviðs og Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagða stefnu Amtsbókasafnsins og drög að aðgerðaáætlun 2023-2025. Bæjarráð telur starf Amtsbókasafnsins vera til mikillar fyrirmyndar og sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu mikil áhersla er lögð á eftirfylgni við stefnur Akureyrarbæjar, ekki síst mannréttindastefnu og umhverfis- og loftslagsstefnu sveitarfélagsins.
Fylgiskjöl
Hverfisráð Grímseyjar - fundargerðir 2023
Málsnúmer 2023030655Lögð fram til kynningar fundargerð hverfisráðs Grímseyjar dagsett 10. mars 2023.
Fylgiskjöl
Frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Málsnúmer 2022110332Lagt fram til kynningar erindi dagsett 13. mars 2023 frá innviðaráðuneytinu þar sem óskað er umsagnar um gagngerar breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 27. mars í gegnum samráðsgáttina.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsögn.
Frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010 uppbygging innviða, 144. mál
Málsnúmer 2023030399Lagt fram til kynningar erindi dagsett 7. mars 2023 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingar á frv. til laga um skipulagslög, 144. mál 2023.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 14. mars á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/153/s/0144.htmlBæjarráð felur bæjarlögmanni að senda svofellda umsögn til nefndarsviðs Alþingis:
Hér er um varasamt fordæmi að ræða þar sem vegið er að sjálfsákvörðunarrétti og skipulagsvaldi sveitarfélaga.
Sunna Hlín Jóhannesdóttir situr hjá og óskar bókað að hún taki undir hluta bókunar Sambands Íslenska sveitarfélaga frá 2020 um þetta tiltekna mál: Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga gerði ekki athugasemd við ákvæði frumvarpsins um raflínuskipulag en áréttaði að tillagan fæli í sér verulegt frávik frá meginreglum skipulagslaga og að mikilvægt væri að ekki væru áform um frekari skref í þá átt að færa skipulagshlutverkið frá sveitarfélögum.Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir, sameining Vinnumálastofnunar og Fjölmenningarseturs, þjónustustöðvar, 782. mál
Málsnúmer 2023030412Lagt fram til kynningar erindi dagsett 8. mars 2023 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir (sameining Vinnumálastofnunar og Fjölmenningarseturs, þjónustustöðvar), 782. mál 2023.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 17. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/pdf/153/s/1194.pdfFrumvarp til laga um brottfall laga um orlof húsmæðra, nr. 53/1972, með síðari breytingum, 165. mál
Málsnúmer 2023030523Lagt fram til kynningar erindi dagsett 9. mars 2023 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um brottfall laga um orlof húsmæðra, nr. 53/1972, með síðari breytingum, 165. mál 2023.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 23. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/pdf/153/s/0166.pdfFrumvarp til laga um grunnskóla, framlög til sjálfstætt rekinna grunnskóla, 128. mál
Málsnúmer 2023030524Lagt fram til kynningar erindi dagsett 9. mars 2023 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um grunnskóla, framlög til sjálfstætt rekinna grunnskóla, 128. mál 2023.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 23. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/153/s/0128.htmlTillaga til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál, 126. mál
Málsnúmer 2023030525Lagt fram til kynningar erindi dagsett 9. mars 2023 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál, 126. mál 2023.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 23. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/153/s/0126.htmlTillaga til þingsályktunar um aðgerðaráætlun gegn hatursorðræðu fyrir árin 2023-2026, 795. mál
Málsnúmer 2023030522Lagt fram til kynningar erindi dagsett 9. mars 2023 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um aðgerðaráætlun gegn hatursorðræðu fyrir árin 2023-2026, 795. mál 2023.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 23. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/pdf/153/s/1212.pdf