Umhverfisnefnd - 117
- Kl. 10:00 - 12:25
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 117
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Kristján Ingimar Ragnarsson
- Kristinn Frímann Árnason
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Jón Birgir Gunnlaugssonverkefnastjóri umhverfismála ritaði fundargerð
Samgönguvika 2016
Málsnúmer 2016080070Umræður um fyrirkomulag Samgönguviku 2016.
Lagt fram til kynningar.
Viðurkenningar fyrir lóðir 2016
Málsnúmer 2016080069Kynning á þeim lóðum sem munu fá viðurkenningar árið 2016.
Lofslagsráðstefnan á Akureyri 2016
Málsnúmer 2016030014Umræður um loftslagsráðstefnu vinabæjanna sem halda á hér á Akureyri dagana 19.- 21. október nk.
Drög að dagskrá ráðstefnunnar lögð fram til kynningar.
Aðgerðarhópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar - nefndir og deildir
Málsnúmer 2016020127Lögð fram bókun bæjarráðs frá 2. júní 2016 þar sem tillögum aðgerðarhóps er vísað til nefnda. Einnig lagðar fram upplýsingar um verkefni sem sett verða til frekari úrvinnslu.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við tillögur aðgerðarhóps vegna þeirra starfssviða sem tilheyra nefndinni í málaflokkum 108-hreinlætismál og 111-umhverfismál og vísar tillögunum óbreyttum til bæjarráðs.
Svifryk og svifryksmælar
Málsnúmer 2016050038Umræður um stöðu erindis sem umhverfisnefnd sendi Umhverfisstofnun varðandi svifryksmæla og hugsanleg kaup Akureyrarbæjar á mæli.
Áshildur Hlín Valtýsdóttir Æ-lista vék af fundi kl. 11:22.
33 kV háspennustrengslögn, Rangárvellir, Hólsvirkjun, Fnjóskadal - lagnaleiðir
Málsnúmer 2016070095Tekið fyrir erindi frá skipulagsnefnd dagsett 10. ágúst 2016 þar sem óskað er umsagnar umhverfisnefndar á hugmyndum Rarik ohf um lagnaleiðir gegnum Akureyri vegna tengingar Hólsvirkjunar í Fnjóskadal.
Umhverfisnefnd mælir með því að A lagnaleiðin verði valin.
Önnur mál í umhverfisnefnd 2016
Málsnúmer 2016080072Rætt um ýmis mál svo sem hreinsunarátak ásamt ummælum og athugasemdum við stefnuræðu formanns umhverfisnefndar.