Velferðarráð - 1265
- Kl. 14:00 - 17:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1265
Nefndarmenn
- Erla Björg Guðmundsdóttirformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Halldóra Kristín Hauksdóttir
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri ÖA
- Jón Hrói Finnssonsviðsstjóri búsetusviðs
- Steinunn Benna Hreiðarsdóttirfundarritari
Sérstakur húsnæðisstuðningur 2017 - áfrýjanir
Málsnúmer 2017040183Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi kynnti áfrýjun varðandi sérstakar húsnæðisbætur og sat fundinn undir þessum lið.
Einnig sátu Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu fjölskyldudeildar og Laufey Þórðardóttir forstöðumaður stoðþjónustu búsetudeildar fundinn undir þessum lið.Afrýjanir og afgreiðslur þeirra eru færðar í trúnaðarbók velferðarráðs.
Fjölskyldusvið - kynning á starfsemi fyrir velferðarráð 2017
Málsnúmer 2017010089Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu og Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður barnaverndar sátu fundinn undir þessum lið og fóru yfir stöðu í málefnum utangarðsfólks á Akureyri og stöðu barnaverndarmála.
Einnig sat Laufey Þórðardóttir forstöðumaður stoðþjónustu búsetudeildar fundinn undir þessum lið.Fjárhagsáætlun 2018 - 2021
Málsnúmer 2017060040Farið yfir fjárhagsáætlun sviða sem heyra undir velferðarráð eftir umræðu í bæjarráði. Stefanía Sif Traustadóttir starfsmaður hjá Öldrunarheimilum Akureyrar, Friðný Sigurðardóttir forstöðumaður stoðþjónustu ÖA og Laufey Þórðardóttir forstöðumaður stoðþjónustu búsetudeildar sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð leggur fram tillögu til bæjarráðs um að í fjárhagsáætlum verði gert ráð fyrir ráðningu lögfræðings til starfa á fjölskyldusviði vegna barnaverndarmála, sem hefði jafnframt það hlutverk að stýra innleiðingu nýrra persónuverndarlaga (GDPR) hjá Akureyrarbæ. Jafnframt leggur velferðarráð til að framlög til heimaþjónustu A verði hækkuð um 10 milljónir króna.
Öldrunarþjónusta - biðlistar 2016 og 2017
Málsnúmer 2016020149Framhald af umræðu á fundi 4. október sl. þar sem velferðarráð óskaði eftir að unnin yrði samantekt um hvernig eða hvort einstaklingar á biðlista eru að nýta aðra öldrunarþjónustu. Jafnframt óskaði velferðarráð eftir að fá upplýsingar um fjölda notenda í heimahjúkrun á vegum HSN og um heimaþjónustu og heimsendan mat á vegum búsetusviðs.
Framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar, Halldór S. Guðmundsson og Stefanía Sif Traustadóttir starfsmaður hjá ÖA, kynntu drög að samantekt sem unnin hefur verið á grundvelli gagna frá ÖA, HSN og búsetusviði.
Friðný Sigurðardóttir forstöðumaður stoðþjónustu ÖA sat fundinn undir þessum lið.Öldrunarheimili Akureyrarbæjar - dagþjálfun
Málsnúmer 2015070050Friðný Sigurðardóttir forstöðumaður stoðþjónustu og framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar, Halldór S. Guðmundsson, kynntu tillögu að breytingu á reglum um dagþjálfun sem tekur mið af áherslum um reglubundið endurmat á þörfum notenda dagþjálfunar sbr. umfjöllun velferðarráðs á fundi 10. maí og 30. ágúst 2017.
Velferðarráð samþykkir tillögurnar og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Hollvinasamtök ÖA
Málsnúmer 2017100201Framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar, Halldór S. Guðmundsson, greindi frá að stofnfundur Hollvinasamtaka ÖA hafi farið fram 31. október sl.
Lagðar voru fram samþykktir félagsins til kynningar.Búsetusvið - gjaldskrá 2018
Málsnúmer 2017110153Lögð fram tillaga búsetusviðs að hækkun gjaldskrár fyrir heimaþjónustu á árinu 2018 um 5%. Gjald fyrir almenna heimaþjónustu eftir hækkun yrði kr. 1.319 og gjald fyrir heimsendan mat yrði kr. 1.265.
Velferðarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarráðs.
Frístundaráð - stefnumótun - íþróttastefna 2017
Málsnúmer 2017020033Lögð fram til umsagnar drög að stefnu Akureyrarbæjar og ÍBA í íþróttamálum til 2022.
Frestað til næsta fundar og Guðrúnu Sigurðardóttur sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að upplýsa frístundaráð.
Velferðarstefna 2014 - 2018
Málsnúmer 2015010191Unnið að gerð velferðarstefnu.