Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra - 4
- Kl. 13:00 - 14:30
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 4
Nefndarmenn
- Jón Heiðar Jónssonformaður
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Jón Heiðar Daðason
- Lilja Guðmundsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
Starfsmenn
- Leifur Þorsteinssonfundarritari
Viðurkenning samstarfsnefndar um ferlimál fatlaðra 2015
Málsnúmer 2015110081Val á húsnæði til viðurkenningar á góðu eða bættu aðgengi fyrir hreyfihamlaða.
Umræður um nokkra staði sem til greina koma og er formanni nefndarinnar falið að skoða þá nánar og velja hús til viðurkenningar í samráði við aðra nefndarmenn.
Viðurkenning verður svo veitt á alþjóðadegi fatlaðra þann 3. desember n.k.Miðbær - aðgengi að verslunum og þjónusturýmum
Málsnúmer 2015110091Skoða þarf með húseigendum og/eða Miðbæjarsamtökunum hvernig eða hvort þeir geti bætt aðgengi að verslunum og öðru þjónusturými við Hafnarstræti (göngugötuna).
Formaður nefndarinnar greindi frá óformlegum viðræðum sem hann átti við fulltrúa Miðbæjarsamtakanna.Formanni nefndarinnar er falið að vinna áfram að málinu.
Brekatún 2 - athugasemdir vegna aðgengis hreyfihamlaðra
Málsnúmer 2015110096Erindi dagsett 13. nóvember 2015 þar sem Bragi Halldórsson gerir athugasemdir við aðgengi hreyfihamlaðra að húsi nr. 2 við Brekatún.
Skipulagsdeild og formanni nefndarinnar er falið að svara bréfritara.