Stjórn Akureyrarstofu - 146
- Kl. 16:00 - 18:30
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 146
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Jón Hjaltason
- Sigmundur Ófeigsson
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Matthías Rögnvaldssonáheyrnarfulltrúi
- Sigfús Arnar Karlssonáheyrnarfulltrúi
- Unnsteinn Jónssonáheyrnarfulltrúi
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Menningarfélagið Hof ses - endurnýjun samstarfssamnings félagsins og Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2011030188Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Menningarfélagsins Hofs ses kom á fundinn og fór yfir stöðuna í rekstri félagsins og starfsárið framundan. Fram kom að rekstur félagsins er áfram jákvæður og viðtökur fólks við viðburðum eru góðar.

Stjórn Akureyrarstofu þakkar Ingibjörgu fyrir greinargóðar upplýsingar og gagnlegar umræður.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands - samningur um starfsemi 2012-2014
Málsnúmer 2011120063Brynja Harðardóttir framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar og Gunnar Frímannsson formaður stjórnar komu á fundinn og fóru yfir rekstrarstöðu hljómsveitarinnar og starfsárið sem hófst á Akureyrarvöku. Fram kom að reksturinn er á réttri leið og útlit fyrir það markmið að í árslok 2014 verði eldri halli uppgreiddur.

Stjórn Akureyrarstofu þakkar Brynju og Gunnari fyrir greinargóðar upplýsingar og gagnlegar umræður.

Leikfélag Akureyrar - samningur 2012-2015
Málsnúmer 2013010067Eiríkur Haukur Hauksson framkvæmdastjóri LA kom á fundinn og fór yfir rekstraráætlun fyrir komandi leikár.

Stjórn Akureyrarstofu þakkar Eiríki Hauki fyrir komuna á fundinn og greinargóða upplýsingagjöf.