Bæjarráð - 3580
14.12.2017
Hlusta
- Kl. 08:15 - 10:28
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3580
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Sigríður Huld Jónsdóttir
- Matthías Rögnvaldsson
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Þorsteinn Hlynur Jónssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dagný Magnea Harðardóttirfundarritari
Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista mætti í forföllum Prebens Jóns Péturssonar.
Endurskoðun ársreikninga 2017-2022 úrskurður kærunefndar útboðsmála
Málsnúmer 2017090037Lagður fram til kynningar úrskurður kærunefndar útboðsmála dagsettur 7. desember 2017 í máli nr. 19/2017. Grant Thornton endurskoðun ehf gegn Akureyrarbæ og Enor ehf.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Fylgiskjöl
Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2017
Málsnúmer 2017040070Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs janúar til og með október 2017.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri vék af fundi kl. 10:13.
Ráðningarsamningur bæjarstjóra 2014-2018 - viðauki
Málsnúmer 2014060081Bæjarráð samþykkir að frá júní 2016 hætti laun bæjastjóra að taka mið af almennum úrskurðum kjararáðs ríkisins eins og kveðið er á um í ráðningarsamningi hans og taki í stað þess mið af breytingum á launavísitölu.