Framkvæmdaráð - 333
- Kl. 17:15 - 20:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 333
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Jón Orri Guðjónsson
- Jón Þorvaldur Heiðarsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Jónas Vigfússonforstöðumaður Umhverfismiðstöðvar ritaði fundargerð
SVA - nýtt leiðarkerfi 2016
Málsnúmer 2016050033Farið yfir minnisblað Eflu verkfræðistofu, dagsett 8. júlí s.l. og rætt um kostnað vegna breytinganna og kynntar tillögur um merkingar á strætisvögnum
Rúna Ásmundsdóttir umferðarverkfræðingur frá Eflu kynnti nýjustu hugmyndir um nýtt leiðakerfi SVA.
Framkvæmdaráð leggur til að leiðakerfi verði breytt í september en aksturstími verði óbreyttur á þessu ári.Fjárhagsáætlun 2016 - framkvæmdadeild
Málsnúmer 2015080078Farið yfir 6 mánaða stöðu fjárhagsáætlunar og framkvæmda á árinu 2016 og rætt um hagræðingartillögur einstakra málaflokka.
Ólafur Stefánsson, slökkviliðsstjóri SA mætti á fundinn undir þessum lið og kynnti tillögur að breyttri starfstilhögun innan slökkviliðsins sem mun leiða til sparnaðar.
Hugmyndin verði útfærð nánar og lögð aftur fyrir framkvæmdaráð.
Lagt fram til kynningar.Drottningarbraut - framkvæmdir
Málsnúmer 2015110156Bæjarráð hefur óskað eftir því við framkvæmdaráð að skoða tímabundna þrengingu á Glerárgötu og Þingvallastræti sem tilraunarverkefni, sbr. bókun 7. júlí s.l.
Lögð var fram til kynningar tillaga frá framkvæmdadeild um útfærslu. Tillaga að útfærslu Drottningarbrautar hefur verið send Vegagerð til umsagnar.
Ákveðið að kostnaðarmeta tillögurnar.