Bæjarráð - 3593
- Kl. 08:15 - 10:05
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3593
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Dagbjört Elín Pálsdóttir
- Matthías Rögnvaldsson
- Gunnar Gíslason
- Edward Hákon Huijbens
- Preben Jón Péturssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirforstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar ritaði fundargerð
Lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarkaupstað - endurskoðun
Málsnúmer 2017020113Lögð fram drög að endurskoðaðri Lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarkaupstað.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur bæjarlögmanni að auglýsa drög að endurskoðaðri lögreglusamþykkt og gefa íbúum kost á að koma að athugasemdum.
Sveitarstjórnarkosningar 26. maí 2018
Málsnúmer 2018020099Lögð fram tillaga um launasetningu undir- og yfirkjörstjórna vegna vinnu við sveitarstjórnarkosningarnar.
Bæjarráð samþykkir framkomna tillögu.
Gásakaupstaður ses - aðalfundur 2018
Málsnúmer 2018040044Erindi móttekið 13. mars 2018 frá Gásakaupstað ses þar sem boðað er til aðalfundar fimmtudaginn 5. apríl 2018 kl.11:00 í Zontasalnum, Aðalstræti 54, Akureyri.
Bæjarráð felur Þórgný Dýrfjörð deildarstjóra Akureyrarstofu að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.
Vinnuskóli 2018 - laun 2018
Málsnúmer 2018040003Lögð fram tillaga um laun í Vinnuskóla Akureyrarbæjar sumarið 2018.
Bæjarráð samþykkir að laun unglinga í Vinnuskóla Akureyrarbæjar sumarið 2018 hækki um 10% og verði sem hér segir:
14 ára kr. 551
15 ára kr. 629
16 ára kr. 826
17 ára fá greitt samkvæmt starfsmati fyrir starfið sumarvinna skólafólks, 82% af launaflokki 116 í kjarasamningi Einingar-Iðju og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
10,17% orlof er greitt til viðbótar við tímakaup.
Fylgiskjöl
Samningur vegna kynningarefnis
Málsnúmer 20180203741. liður í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dagsett 22. mars 2018:
Mál tekið fyrir að nýju. Var áður á dagskrá fundar þann 15. mars sl.
Samningur við N4 vegna kynningarefnis lagður fram til samþykktar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn og vísar honum til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. Jafnframt er óskað eftir viðauka við fjárhagsáætlun vegna hans.Bæjarráð staðfestir samninginn og samþykkir framlagðan viðauka og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Northern Forum 2017
Málsnúmer 2017010562Skýrsla Northern Forum 2017 lögð fram til kynningar.
Rætt um ársfund Northern Forum sem haldinn verður dagana 11. og 12. apríl nk. í Krasnoyarsk í Rússlandi.Fylgiskjöl
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2018
Málsnúmer 2018030432Lögð fram til kynningar fundargerð 858. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 23. mars 2018. Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx
Eyþing - fundargerðir
Málsnúmer 2010110064Lögð fram til kynningar fundargerð 304. fundar stjórnar Eyþings dagsett 21. mars 2018. Fundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.eything.is/is/fundargerdir-1
Flugklasi - samstarf um millilandaflug til Norðurlands
Málsnúmer 2011060107Skýrsla flugklasans Air 66N dagsett 20. mars 2018 lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála, 389. mál
Málsnúmer 2018030374Lagt fram til kynningar erindi dagsett 22. mars 2018 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála, 389. mál 2018.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 5. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0539.htmlFrumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði, 394. mál
Málsnúmer 2018030423Lagt fram til kynningar erindi dagsett 27. mars 2018 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði, 394. mál 2018.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 13. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0551.htmlFrumvarp til laga um lögheimili og aðsetur, 345. mál
Málsnúmer 2018030416Lagt fram til kynningar erindi dagsett 27. mars 2018 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um lögheimili og aðsetur, 345. mál 2018.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 12. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0459.html