Stjórn Akureyrarstofu - 160
- Kl. 16:00 - 18:30
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 160
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Jón Hjaltason
- Þórarinn Stefánsson
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Helgi Vilberg Hermannssonáheyrnarfulltrúi
- Sigfús Arnar Karlssonáheyrnarfulltrúi
- Unnsteinn Jónssonáheyrnarfulltrúi
- fundarritari
Leikfélag Akureyrar - staða rekstrar
Málsnúmer 2011080046Soffía Gísladóttir formaður, Ragnheiður Skúladóttir leikhússtjóri og Eiríkur Haukur Hauksson framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar mættu á fund stjórnarinnar og fóru yfir stöðu Leikfélagsins. Fram kom að stjórn félagsins óskar eftir því að samningur þess við Akureyrarbæ verði tekinn upp til endurskoðunar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fela formanni og framkvæmdastjóra Akureyrarstofu að ræða við félagið um þær óskir.Hrísey - atvinnumál
Málsnúmer 2014020149Lögð fram til kynningar skýrsla áhugahóps um atvinnuþróun í Hrísey sem var til umfjöllunar á íbúafundi í eynni þann 26. mars sl. Umræður um skref sem Akureyrarbær getur stigið í þessari vinnu.
Heiðursviðurkenningar Menningarsjóðs 2014
Málsnúmer 2014040020Rætt um mögulegar viðurkenningar Menningarsjóðs sem afhentar verða á Vorkomu stjórnar Akureyrarstofu á sumardaginn fyrsta, þann 24. apríl nk.
Athafna- og nýsköpunarverðlaun Akureyrarbæjar 2014
Málsnúmer 2014040019Rætt um athafna- og nýsköpunarverðlaunin sem afhent verða á Vorkomu stjórnar Akureyrarstofu á sumardaginn fyrsta, þann 24. apríl nk.
Stjórn Akureyrarstofu felur Höllu Björk Reynisdóttur, Jóni Hjaltasyni og Unnsteini Jónssyni, fulltrúum í stjórninni ásamt verkefnisstjóra atvinnumála á Akureyrarstofu að undirbúa tillögur um mögulega viðurkenningarhafa fyrir næsta fund.