Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 835
- Kl. 13:00 - 13:20
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 835
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Hjálmar Árnasonfundarritari
Ægisgata 25 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021100076Erindi dagsett 3. október 2021 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Kristbjörns Heiðars Tryggvasonar sækir um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu á lóð nr. 25 við Ægisgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnasonar.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Strandgata 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir veitingastað
Málsnúmer 2021100153Erindi dagsett 4. október 2021 þar sem Jón Þór Þorvaldsson fyrir hönd Rafmax ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 3 við Strandgötu. Fyrirhugað er að opna veitingastað. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jón Þór Þorvaldsson. Erindið fór fyrir skipulagsráð 13. október sl. sem gerði ekki athugasemd við fyrirhugaðar breytingar.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Strandgata 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021100322Erindi dagsett 6. október 2021 þar sem Jón Þór Þorvaldsson fyrir hönd VeturSeturs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 3 við Strandgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jón Þór Þorvaldsson. Erindið fór fyrir skipulagsráð 13. október sl. sem gerði ekki athugasemd við fyrirhugaðar breytingar.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hofsbót 2 - umsókn um leyfi fyrir niðurrifi
Málsnúmer 2021100534Erindi dagsett 8. október 2021 þar sem Ketill Sigurður Jóelsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um leyfi til niðurrifs húss nr. 2 við Hofsbót. Meðfylgjandi er áætlun um meðhöndlun úrgangs, tilkynning til vinnueftirlits og samþykki heilbrigðiseftirlits.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Þjóðskrár Íslands eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. mannvirkjalaga.