Skipulagsráð - 410
- Kl. 08:15 - 11:55
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 410
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Þórhallur Jónsson
- Helgi Sveinbjörn Jóhannsson
- Sif Jóhannesar Ástudóttir
- Jón Hjaltason
- Sunna Hlín Jóhannesdóttiráheyrnarfulltrúi
- Sindri S. Kristjánssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Pétur Ingi Haraldssonskipulagsfulltrúi
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
- María Markúsdóttirfundarritari
- Einar Sigþórssonverkefnastjóri skipulagsmála
Viðjulundur 1 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Málsnúmer 2022120336Auglýsingu tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð nr. 1 við Viðjulund lauk þann 2. október sl.
Tíu athugasemdir bárust auk umsagna frá Minjastofnun Íslands og Norðurorku.Skipulagsráð frestar afgreiðslu og felur skipulagsfulltrúa að vinna tillögu að umsögn um innkomnar athugasemdir.
Hafnarstræti 73 og 75 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Málsnúmer 2023040862Erindi dagsett 5. október 2023 þar sem Haraldur Sigmar Árnason f.h. Hótels Akureyrar ehf. sækir um heimild til að reisa fimm hæða hús á lóð nr. 75 við Hafnarstræti ásamt því að sækja um heimild til hækkunar á húsi á lóð nr. 73 upp í fimm hæðir.
Meðfylgjandi eru þrívíddar- og skuggavarpsmyndir.Skipulagsráð heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi Drottningarbrautarreits til samræmis við framlögð gögn. Skipulagsráð samþykkir að tillagan verði kynnt skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.Fylgiskjöl
Norðurgata 3-7 - tillaga að uppbyggingu
Málsnúmer 2023021108Kynningu á tillögu á vinnslustigi að breytingu á deiliskipulagu suðurhluta Oddeyrar vegna áforma um uppbyggingu á lóðum nr. 3-7 við Norðurgötu lauk þann 29. september sl.
Fjórar athugasemdir bárust auk umsagnar frá Norðurorku.Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi og að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
Óseyri 1 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Málsnúmer 2023100119Erindi dagsett 3. október 2023 þar sem Ingvar Ívarsson f.h. Módelhúsa ehf. sækir um breytingu á deiliskipulagi fyrir Óseyri 1. Fyrirhugað er að hækka leyfilega hámarkshæð byggingar úr 7,6 m í 8 m yfir gólfkóta.
Meðfylgjandi er deiliskipulagsuppdráttur.Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ekki er talin þörf á grenndarkynningu sbr. 44. gr. laganna. Er skipulagsfulltrúa falið að sjá um gildistöku breytingarinnar þegar fullnægjandi skipulagsgögn liggja fyrir.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.Fylgiskjöl
Óseyri 6C - umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Málsnúmer 2023091397Erindi dagsett 27. september 2023 þar sem Ívar Helgi Grímsson f.h. Grim Apartments ehf. sækir um heimild til að reisa viðbyggingu við hús á lóð nr. 6C við Óseyri.
Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún grenndarkynnt skv. 44. gr. laganna. Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Óseyri 4 og 8 auk þess sem samþykki skal liggja fyrir frá eigendum Óseyri 6A og 6B.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.Brekkugata 45 - fyrirspurn varðandi skipulagsmál
Málsnúmer 2023081036Erindi dagsett 22. ágúst 2023 þar sem Inga Sigrún Atladóttir leggur inn fyrirspurn varðandi skiptingu einbýlishúss á lóð nr. 45 við Brekkugötu í tvær íbúðir.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 13. september sl. og var afgreiðslu frestað.Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista bar upp vanhæfi við afgreiðslu málsins og var það samþykkt. Vék hún af fundi undir umræðum og við afgreiðslu máls.
Meirihluti skipulagsráðs samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún grenndarkynnt skv. 44. gr. laganna. Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Brekkugötu 43 og 47.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.Seljahlíð 3G - fyrirspurn varðandi skipulagsmál
Málsnúmer 2023100194Erindi dagsett 4. október 2023 þar sem Fróði Ólafsson sækir um heimild til að reisa sólskála sem viðbyggingu við hús nr. 3G við Seljahlíð.
Stærð viðbyggingar yrði 3,6 x 3,2 m og hæð 2,5 m.
Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Meðfylgjandi eru skýringarmyndir.Skipulagsráð samþykkir að grenndarkynna áformin skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Seljahlíð 3E, 3F, 3H og 3I.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.Fylgiskjöl
Glerárgata - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gönguþverun
Málsnúmer 2023090984Erindi dagsett 20. september 2023 þar sem Árni Ingimarsson f.h. Vegagerðarinnar sækir um framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu gönguþverunar yfir Glerárgötu við Grænugötu og Smáragötu. Meðfylgjandi eru framkvæmdalýsing og grunnmynd.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 27. september sl. og var afgreiðslu frestað til næsta fundar.Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við erindið þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.
Jafnframt óskar skipulagsráð eftir að fá fulltrúa Vegagerðarinnar á næsta fund ráðsins til að ræða ýmis umferðarmál á Glerárgötu.Fylgiskjöl
Leirunesti Drottningarbraut - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu heimtaugar
Málsnúmer 2023100284Erindi dagsett 5. október 2023 þar sem Jóhannes Björn Ófeigsson f.h. Norðurorku sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafmagnsheimtauga frá dreifistöð við Duggufjöru að Leirunesti við Drottningarbraut.
Meðfylgjandi eru framkvæmdalýsing og skýringaruppdráttur.Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.Fylgiskjöl
Heiðartún - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gerð leiksvæðis
Málsnúmer 2023100138Erindi dagsett 4. október 2023 þar sem Jón Birgir Gunnlaugsson f.h. umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um framkvæmdaleyfi fyrir gerð leiksvæðis á milli Hamratúns og Heiðartúns.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.
Meðfylgjandi eru skýringargögn.Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.Fylgiskjöl
Áningarstaðir í Hrísey - umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2023100264Erindi dagsett 5. október 2023 þar sem María Helena Tryggvadóttir f.h. Akureyrarbæjar sækir um framkvæmdaleyfi fyrir uppbyggingu áningarstaða í Hrísey.
Meðfylgjandi eru skýringarmyndir.Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.Fylgiskjöl
Kjarnabraut - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara
Málsnúmer 2023100256Erindi dagsett 5. október 2023 þar sem Bergur Þórðarson f.h. Orkufjarskipta sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara meðfram Kjarnabraut.
Meðfylgjandi eru framkvæmdalýsing og skýringaruppdrættir.Skipulagsráð samþykkir erindið með fyrirvara um samþykki Landsnets vegna nálægðar við Hólasandslínu 1 og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.Fylgiskjöl
Sambíó Akureyri - fyrirspurn varðandi ljósaskilti
Málsnúmer 2023080806Erindi dagsett 17. ágúst 2023 þar sem Björn Ásberg Árnason f.h. Sambíóa Akureyri sækir um uppsetningu ljósaskiltis á vegg húss nr. 4 við Ráðhústorg. Umrætt skilti er 4,8x2,7 m að flatarmáli.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 13. september sl. og var afgreiðslu frestað.Skipulagsráð frestar afgreiðslu.
Aðalstræti 9 - fyrirspurn til skipulagsráðs
Málsnúmer 2023100280Erindi dagsett 5. október 2023 þar sem Haraldur Sigmar Árnason f.h. Valgerðar Stefánsdóttur sækir um breytta notkun á hluta húss nr. 9 við Aðalstræti. Fyrirhugað er að breyta herbergi á fyrstu hæð í nuddstofu.
Meðfylgjandi er afstöðumynd.Skipulagsráð samþykkir að grenndarkynna áformin skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Aðalstræti 7, 8, 10 og 12.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.Fylgiskjöl
Bjarkarlundur 2 - auglýsing lóðar
Málsnúmer 2023010134Á fundi skipulagsráðs þann 10. janúar sl. var samþykkt að auglýsa lóð nr. 2 við Bjarkarlund lausa til úthlutunar í samræmi við reglur Akureyrarbæjar um úthlutun lóða. Lögð er fram tillaga um að lóðin verði auglýst með sömu úthlutunarskilmálum og hafa verið samþykktir fyrir lóðir í Holtahverfi norður og 2. áfanga Móahverfis.
Skipulagsráð leggur til við bæjarráð að það samþykki að lóð nr. 2. við Bjarkarlund verði úthlutað eftir útboðsleið með lágmarksverði í samræmi við fyrirliggjandi skilmála.
Umhverfis- og loftslagsstefna Akureyrarbæjar 2022-2030
Málsnúmer 2022060764Lagður fram til kynningar og umræðu sjötti kafli í umhverfis- og loftslagsstefnu Akureyrarbæjar.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður úrgangsmála hjá Akureyrarbæ sat fundinn undir þessum dagskrárlið.Skipulagsráð samþykkir að bæta kafla um umgengni og þrifnað utanhúss við umhverfis- og loftslagsstefnuna og vísar honum til bæjarstjórnar til samþykktar.
Hvítbók um skipulagsmál - umsagnarbeiðni
Málsnúmer 2023091039Lögð fram til umræðu Hvítbók um skipulagsmál - drög að landsskipulagsstefnu til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára ásamt umhverfismatsskýrslu sem eru í kynningar- og umsagnarferli á vegum innviðaráðuneytis. Umsagnarfrestur er veittur til 31. október nk.
Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að vinna drög að umsögn í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir næsta fund ráðsins.
Fylgiskjöl
Ytri-Varðgjá - umsagnarbeiðni fyrir skipulagslýsingu íbúðarsvæðis
Málsnúmer 2023091612Erindi dagsett 21. september 2023 þar sem Eyjafjarðarsveit óskar eftir umsögn um skipulagslýsingu fyrir íbúabyggð í landi Ytri-Varðgjár.
Meðfylgjandi er deiliskipulagslýsing.Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við framlagða skipulagslýsingu.
Fylgiskjöl
Svæðisskipulag Eyjafjarðar - endurskoðun
Málsnúmer 2023100237Erindi svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar dagsett 4. október 2023 þar sem óskað er eftir umræðu í skipulagsráði um endurskoðun og framtíð svæðisskipulags Eyjafjarðar.
Frestað til næsta fundar.
Glerárgata 7 - stjórnsýslukæra
Málsnúmer 2023100311Lögð fram til kynningar kæra Pacta lögmanna ehf. dagsett 6. október 2023 til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna breytingar á deiliskipulagi miðbæjar vegna áforma á lóð nr. 7 við Glerárgötu.
Fylgiskjöl
Afgreiðslur byggingarfulltrúa
Málsnúmer 2022010178Lögð fram til kynningar fundargerð 935. fundar, dagsett 28. september 2023, með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 9 liðum og er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar.