Velferðarráð - 1325
- Kl. 14:00 - 16:29
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1325
Nefndarmenn
- Heimir Haraldssonformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Hermann Ingi Arason
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri ÖA
- Karólína Gunnarsdóttirsviðsstjóri búsetusviðs
- Kristbjörg Björnsdóttirfundarritari
Mannréttindastefna 2020-2023
Málsnúmer 2019030417Bryndís Elfa Valdemarsdóttir skrifstofustjóri og jafnréttisráðgjafi kynnti mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.
Velferðarráð þakkar Bryndísi fyrir kynningu á mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.
Lengd viðvera fyrir fötluð börn
Málsnúmer 2020090333Lagt fram til umræðu minnisblað dagsett 25. ágúst 2020 frá Önnu Marit Níelsdóttur, Fanneyju Jónsdóttur og Þórhildi G. Kristjánsdóttur um lengda viðveru fyrir fötluð börn.
Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu og Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2021.
Sérstakur húsnæðisstuðningur 2020
Málsnúmer 2020090332Magnús Valur Axelsson og Pálína Ásbjörnsdóttir húsnæðisfulltrúar kynntu minnisblað vegna sérstaks húsnæðisstuðnings dagsettu 14. september 2020.
Velferðarráð felur húsnæðisfulltrúum og sviðsstjóra að vinna málið áfram.
Viðauki búsetusviðs vegna ársins 2020
Málsnúmer 2020090414Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun. Lagt er til að hækka fjárhagsáætlun notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar og þjónustukjarnans við Klettaborg. Að auki er lagt til að tekjuauki verði gerður vegna þjónustukjarnans í Hafnarstræti 28-30.
Kolbeinn Aðalsteinsson skrifstofustjóri búsetusviðs sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð - fjárhagsáætlun 2021
Málsnúmer 2020090016Framvinda við gerð fjárhagsáætlana búsetu- og fjölskyldusviðs kynnt.
Kolbeinn Aðalsteinsson skrifstofustjóri búsetusviðs sat fundinn undir þessum lið.Starfsáætlun velferðarráðs 2021
Málsnúmer 2020090386Sigríður Inga Pétursdóttir M-lista yfirgaf fundinn kl. 16:07. <br />
Starfsáætlanir búsetu- og fjölskyldusviðs lagðar fram til samþykktar.
Velferðarráð samþykkir framlagðar starfsáætlanir.
Öldrunarþjónusta - biðlistar
Málsnúmer 2016020149Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar kynnti yfirlit yfir fjölda einstaklinga sem metnir eru af færni- og heilsumatsnefnd í þörf fyrir dvalar- og hjúkrunarrými þann 1. september sl. ásamt upplýsingum um fjölda umsækjenda á biðlista eftir dagþjálfun.