Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 897
- Kl. 13:00 - 14:00
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 897
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Þórunn Vilmarsdóttirfundarritari
Gleráreyrar 1 (rými 49) - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Niðurrif
Málsnúmer 2022070294Erindi dagsett 16. desember 2022 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Samkaupa hf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Fyrirhugað er að færa Nettó í rými 49. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Óseyri 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022120976Erindi dagsett 22. desember 2022 þar sem Guðmundur Oddur Víðisson fyrir hönd Módelhúss ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir húsi á lóð nr. 1 við Óseyri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Guðmund Odd Víðisson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Hafnarstræti 39 - umsókn um fjölgun íbúða
Málsnúmer 2022121117Erindi dagsett 28. desember 2022 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd 603 ehf. sækir um að fjölga fasteignum í húsi nr. 39 við Hafnarstræti. Fyrirhugað er að fjölga íbúðum úr tveimur í þrjár. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.
Hulduholt 5-11 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022100592Erindi dagsett 17. október 2022 þar sem Hugrún Þorsteinsdóttir fyrir hönd Modulus ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóð nr. 5 við Hulduholt. Innkomnar nýjar teikningar 23. desember 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.