Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks - 10
- Kl. 16:00 - 17:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 10
Nefndarmenn
- Valdís Anna Jónsdóttirformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Sigrún María Óskarsdóttir
- Sif Sigurðardóttirfulltrúi Þroskahjálpar NE
- Friðrik Sighvatur Einarssonfulltrúi Grófarinnar
- Herdís Ingvadóttirfulltrúi Sjálfsbjargar
- Elmar Logi Heiðarssonvarafulltrúi Sjálfsbjargar
Starfsmenn
- Karólína Gunnarsdóttirsviðsstjóri búsetusviðs
Sumarvinna - fötluð börn og ungt fólk
Málsnúmer 2020050443Samráðshópurinn óskaði eftir upplýsingum um stöðu fatlaðra barna og ungs fólks í atvinnumálum í sumar.
Til að ræða það mættu á fundinn Orri Stefánsson verkefnastjóri vinnuskóla og sumarvinnu með stuðningi, Helga Guðrún Sigurbjörnsdóttir verkefnastjóri sumarvinnu með stuðningi og Ágústa Kristinsdóttir verkstjóri í vinnuskóla.Samráðshópurinn þakkar starfsmönnum samfélagssviðs kynninguna og vonar að vel gangi að finna vinnu fyrir fatlað fólk í sumar þótt ljóst sé að staðan er erfiðari núna en oft áður.
Þjónusta fyrir fatlað fólk: Hæfing - iðja - virkni
Málsnúmer 2020040567Þróun í atvinnumálum og virkni tilboðum fyrir fatlað fólk þarf að eiga sér stað. Til að gera það þarf að skoða þá þjónustu sem er í boði í dag og þróa hugmyndir út frá því nýjasta í hugmyndafræði í málaflokknum.
Velferðarráð fjallaði um málið 6. maí sl. og vísaði málinu áfram til samráðshóps um málefni fatlaðs fólks til umsagnar.Samráðshópurinn fagnar þeim tillögum sem fram koma á minnisblaðinu. Hópurinn telur að með þessu sé verið að koma meira til móts við einstaklinginn og mæta þörfum hans og getu.
Viðbragðsáætlanir Akureyrarbæjar vegna COVID-19
Málsnúmer 2020030378Upplýsingar um þjónustu búsetu- og velferðarsviðs á COVID-tímum.
Samráðshópurinn þakkar kynninguna og gleðst yfir hversu vel til tókst á þessum erfiðu tímum. Hópurinn vill jafnframt koma fram þakklæti til starfsmanna bæjarins og hrósa þeim fyrir að hafa haldið svo vel á málum og hlúð vel að viðkvæmum hópum.
Heimsókn í Klettaborg 43
Málsnúmer 2020050449Í byggingu er þjónustukjarni með 6 íbúðum fyrir fatlað fólk að Klettaborg 43. Gert er ráð fyrir að fyrstu íbúar flytji inn 15. júní nk.
Samráðshópnum býðst að skoða húsnæðið í fylgd Kristins Más Torfasonar, forstöðumanns þjónustukjarna að Þrastarlundi 3 og Jörvabyggð 14.Heimsókninni var frestað.