Framkvæmdaráð - 311
- Kl. 08:15 - 10:40
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 311
Nefndarmenn
- Dagur Fannar Dagssonformaður
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Jónas Valdimarssonverkefnastjóri hönnunar
- Jón Birgir Gunnlaugssonforstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun 2015 - framkvæmdadeild
Málsnúmer 2014080067Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista mætti ekki á fundinn og ekki varamaður í hennar stað. <br />
Farið yfir fjárhagsáætlun ársins, stöðu reksturs og framkvæmda.
Lagt fram til kynningar.
Snjómokstur og hálkuvarnir 2015-2018 - útboð
Málsnúmer 2014090240Farið yfir ný útboðsgögn vegna snjómoksturs og hálkuvarna 2015-2018.
Lagt fram til kynningar.
Útboð framkvæmdadeildar árið 2015
Málsnúmer 2015020018Tekið fyrir opnun tilboða, Borgarbraut-Bugðusíða, hringtorg, opnað 29 júní s.l. og Naustahverfi VI-Hagar-eftirlit, opnað 26 júní s.l.og kynnt verðkönnun, Græn svæði júní 2015, opnað 22 júní s.l.,
Framkvæmdaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðendur í tvö af verkunum sem eru: Mannvit hf í verkið Naustahverfi VI Hagar-eftirlit kr. 5.700.000 og við Finn ehf í verkið Verðkönnun græn svæði 2015 kr. 7.952.960.
Framkvæmdaráð frestar ákvörðun á verkinu Borgarbraut-Bugðusíða, hringtorg og felur formanni og bæjartæknifræðingi að ræða við skipulagsdeild og hverfisnefndir Síðuhverfis og Giljahverfis s.b.r umræður á fundinum.
SVA sumarakstur árið 2015
Málsnúmer 2015030190Farið yfir stöðu mála vegna sumaraksturs hjá SVA
Eins og fram hefur komið verður engin röskun á akstri strætisvagna Akureyrar í sumar. Framkvæmdaráð lýsir yfir ánægju sinni með að tekist hafi að leysa akstur í sumar þannig að ekki þurfi að koma til lokunar og þakkar starfsfólki strætisvagna og ferliþjónustu Akureyrar sérstaklega fyrir þeirra framlag til lausnar málsins.
Bílastæði - sérmerking fyrir bíla á innlendu eldsneyti
Málsnúmer 2015060174Erindi frá Guðmundi Hauki Sigurðsyni, f.h. Vistorku, ódagsett, um merkingu á bílastæðum í og við miðbæ Akureyrar.
Framkvæmdaráð tekur jákvætt í erindið en leggur áherslu á að tími gildi í klukkustæðum og að ekki verði settar upp hleðslustöðvar í göngugötu vegna plássleysis.
Önnur mál
Málsnúmer 2015010067Njáll Trausti Friðbertsson D-lista telur mikla þörf á að slá hundasvæðið á Borgum sem fyrst.