Félagsmálaráð - 1126
- Kl. 14:00 - 17:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1126
Nefndarmenn
- Inda Björk Gunnarsdóttirformaður
- Dagur Fannar Dagsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Oktavía Jóhannesdóttir
- Margrét Guðjónsdóttirfundarritari
Framkvæmdastjóri búsetudeildar
Málsnúmer 2011050001Félagsmálaráð tók fyrir umsóknir um starf framkvæmdastjóra búsetudeildar. \nInda Björk Gunnarsdóttir formaður félagsmálaráðs og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri kynntu niðurstöður úr viðtölum við umsækjendur.
<DIV><DIV>Félagsmálaráð samþykkir samhljóða að mæla með því að Soffía Lárusdóttir verði ráðin í starf framkvæmdastjóra búsetudeildar.</DIV><DIV>Öðrum umsækjendum þakkar félagsmálaráð fyrir áhugann á starfi hjá Akureyrarbæ.</DIV></DIV>
Félagsmálaráð - skoðunarferð um stofnanir sem heyra undir ráðið
Málsnúmer 2009090034Félagsmálaráð fór í skoðunarferð í sambýlið í Snægili þar sem Guðrún Guðmundsdóttir forstöðumaður sambýlisins kynnti starfsemina. Að því loknu var farið í sambýlið í Geislatúni þar sem Þorbjörg Guðmundsdóttir deildarstjóri á sambýlinu tók á móti ráðinu og að lokum var farið í þjónustukjarnann í Vallartúni þar sem Ólafur Örn Torfason forstöðumaður þjónustukjarnans fræddi ráðið um starfsemina.
<DIV>Félagsmálaráð þakkar góðar kynningar á starfseminni og starfsfólki vel unnin störf á þessum stöðum.</DIV>