Umhverfis- og mannvirkjaráð - 33
- Kl. 08:15 - 09:15
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 33
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Eiríkur Jónsson
- Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
- Hildigunnur Rut Jónsdóttirforstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður nýframkvæmda
Framlenging á samningum um sorphirðu og tengdum verkefnum fyrir Akureyrarbæ við Gámaþjónustu Norðurlands ehf
Málsnúmer 2018050012Lögð fram drög að framlengingu á gildandi samningum við Gámaþjónustu Norðurlands ehf, dagsett 28. maí 2018, um þjónustu við sorphirðu og sorpflutning samkvæmt ákvæðum samninganna Sorphirða í Akureyrarkaupstað - Söfnun og flutningur úrgangs undirritaður 9. september 2010 og Sorphirða í Akureyrarkaupstað - Móttaka og flutningur úrgangs undirritaður 27. janúar 2011.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framlengingarákvæði gildandi samninga verði notað og samningarnir framlengdir um fjögur ár frá 1. desember 2018, með uppsagnarákvæði á framlengingartíma. Báðum aðilum samninga er heimilt að segja upp samningum með 6 mánaða fyrirvara og þarf uppsögn að liggja fyrir eigi síðar en 31. maí 2020 og renna þá samningarnir út 30. nóvember 2020. Verði ekki uppsögn á samningum gilda þeir til 30. nóvember 2022.
Umhverfis- og mannvirkjaráð leggur áherslu á að stuðlað verði að aukinni flokkun meðal íbúa Akureyrarbæjar og endurvinnsla verði aukin. Unnið verði skipulega að kynningu og fræðslu til bæjarbúa. Einnig að umgengni og þrif við grenndargáma og á athafnasvæðinu við Hlíðarfjallsveg verði bætt. Verkfundir verði haldnir reglulega og fylgst sé með að unnið sé eftir ákvæðum samningsins.
Glerárskóli - bygging leikskóla, lóðar, tengibygginga og samkomusals
Málsnúmer 2018050021Lögð fram niðurstaða verðkönnunar á arkitektahönnun dagsett 22. maí 2018.
Alls bárust 3 tilboð:
Kollgáta ehf kr. 34.450.000 86%
AVH ehf kr. 46.800.000 117%
Teiknistofa Arkitekta ehf kr. 57.000.000 143%
Kostnaðaráætlun kr. 40.000.000Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Kollgátu ehf.
Fylgiskjöl
Pálmholt - utanhússmálun Flúðir 2018
Málsnúmer 2018050221Lögð fram tilboð sem bárust í utanhússmálun á leikskólanum Pálmholti.
Alls bárust 4 tilboð og eftir yfirferð er niðurstaðan eftirfarandi:
Litblær ehf kr. 2.598.500 58%
Betri fagmenn ehf kr. 3.750.080 83%
Íslenskir málarar ehf kr. 3.901.650 87%
Betra mál ehf kr. 8.164.745 181%
Kostnaðaráætlun kr. 4.500.000Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Litblæ ehf.
Fylgiskjöl
Listasafn - utanhússmálun 2018
Málsnúmer 2018050219Lögð fram tilboð sem bárust í utanhússmálun á Listasafninu.
Alls bárust 2 tilboð og eftir yfirferð þeirra er niðurstaðan eftirfarandi:
Málverk ehf kr. 7.137.080 73%
Íslenskir málarar ehf kr. 9.383.600 96%
Kostnaðaráætlun kr. 9.800.000Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Málverk ehf.
Fylgiskjöl