Skólanefnd - 8
- Kl. 13:30 - 15:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 8
Nefndarmenn
- Logi Már Einarssonformaður
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Hanna Dögg Maronsdóttir
- Preben Jón Pétursson
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Ábending til skólanefnda um kostnað vegna námsgagna
Málsnúmer 2016050176Lagt fram til kynningar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dagsett 3. maí 2016 með ábendingu til skólanefnda um kostnað vegna námsgagna.
Aflið - systursamtök Stígamóta - styrkbeiðni - samstarfssamningur 2015
Málsnúmer 2015040043Samstarfssamningur um þjónustu sem Aflið mun veita einstaklingum og hópum, fræðslu- og kynningarstarf fyrir stofnanir Akureyrarbæjar og hópa fagfólks og forvarnastarf.
Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi vék af fundi við umræðu og afgreiðslu þessa liðar.Skólanefnd samþykkir samninginn.
Aðgerðarhópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar - tillögur skólanefndar
Málsnúmer 2016030022Niðurstaða aðgerðarhóps: Magnús Kristjánsson KPMG, Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður bæjarráðs mættu á fundinn og fóru yfir tillögurnar.
Preben Jón Pétursson vék af fundi kl. 14:30.Málefni framhaldsskólanna
Málsnúmer 2016050204Skólanefnd Akureyrarbæjar lýsir þungum áhyggjum af fjármögnun framhaldsskólanna og beinir því til menntamálaráðherra og fjármálaráðherra að bregðast við þeim vanda nú þegar.
Framtíð barnanna okkar er í húfi.