Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 670
- Kl. 13:00 - 14:40
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 670
Nefndarmenn
- Bjarki Jóhannessonbyggingarfulltrúi
- Leifur Þorsteinsson
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Drottningarbraut N1 - umsókn um breytingar
Málsnúmer 2017020173Erindi dagsett 5. mars 2018 þar sem Sigurður Einarsson fyrir hönd N1 hf., kt. 540206-2010, sækir um leyfi til að fella niður flóttaleið í gegnum kæli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sigurð Einarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Ráðhústorg 9 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss
Málsnúmer 2018030085Erindi dagsett 5. mars 2018 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd Kaffi 600 ehf., kt. 491111-0460, og Guri ehf., kt. 690806-0530, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 9 við Ráðhústorg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði
Hafnarstræti 106 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss og skiptingu hússins í tvær eignir
Málsnúmer 2018030087Erindi dagsett 5. mars 2018 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Drífu ehf., kt. 480173-0159, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 106 við Hafnarstræti. Einnig er sótt um að skipta húsinu í tvær eignir. Meðfylgjandi er teikning eftir Loga Má Einarsson. Innkomin ný teikning 14. mars 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Bent skal á gera þarf eignaskiptasamning fyrir húsið áður en lokaúttekt verður gerð.
Baldursnes 8 - byggingarleyfi
Málsnúmer BN070315Erindi dagsett 14. febrúar 2018 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Valhallar ehf., kt. 670269-6639, sækir um byggingarleyfi fyrir skiptingu húss nr. 8 við Baldursnes í þrjár noteiningar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson. Innkomnar nýjar teikningar 14. mars 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Þórsstígur 4 - umsókn um breytingar inni
Málsnúmer BN100184Erindi dagsett 18. apríl 2011 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Hölds ehf., kt. 651174-0239, sækir um breytingar frá áður samþykktum teikningum af Þórstíg 4. Meðfylgjandi er teikning eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 14. mars 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Þórsstígur 4 - umsókn um breytingar á norður- og miðsal og á bílastæði
Málsnúmer 2012070009Erindi dagsett 3. júlí 2012 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Hölds ehf., kt. 651174-0239, sækir um breytingar frá áður samþykktum teikningum af Þórstíg 4. Meðfylgjandi er teikning eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 14. mars 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.