Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 504
- Kl. 13:00 - 14:25
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 504
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinsson
- Pétur Bolli Jóhannessonskipulagsstjóri
- Ólafur Jakobsson
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Aðalstræti 13 - umsókn um bílastæði
Málsnúmer 2014070172Erindi ódagsett frá Gunnari Njáli Gunnarssyni þar sem hann sækir um leyfi til að gera bílastæði syðst á lóðinni nr. 13 við Aðalstræti með aðkomu frá Duggufjöru skv. meðfylgjandi teikningu. Meðfylgjandi er samþykki meðeiganda og samþykki eiganda efri hæðar Aðalstræti 15.

Skipulagsstjóri samþykkir umbeðið bílastæði, enda verði frágangur á lóðarmörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Einnig skal umsækjandi kosta frágang á svæði milli götu og lóðar.

Hlíðarfjallsvegur - Glerá - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2011030103Erindi dagsett 20. júlí 2014 þar sem Hrafnkell Sigtryggsson sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Glerá 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Friðrik Friðriksson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Míla - framkvæmdaleyfi fyrir ljósveitu
Málsnúmer 2014040229Tvö erindi dagsett 16. júlí. 2014 frá Ingimari Ólafssyni þar sem hann f.h. Mílu ehf., kt. 460207-1690, óskar eftir útgáfu framkvæmdaleyfis sbr. bókun skipulagsnefndar 28. maí 2014. \nUm er að ræða framkvæmdir samkvæmt meðfylgjandi teikningum við: \n1) Skógar- og Furulund, áfangi 1 - svæði 1 og 1B. \n2) Eikarlund, áfangi 1 - svæði 2. \n3) Þingvallastræti áfangi 1 - svæði 3, 4 og 5. \n4) Þingvallastræti, Grundar- og Dalsgerði áfangi 1 - svæði 3, 4 og 5. \nMeðfylgjandi er staðfesting á samráði við framkvæmdadeild og Norðurorku.
Skipulagsstjóra samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir ofantalin verk. Framkvæmdir skulu gerðar í samræmi við verklagsreglur Akureyrarbæjar um yfirborðsfrágaig í bæjarlandinu. Framkvæmdir skulu vera í samræmi við 24. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur. Framkvæmdaleyfið gildir í eitt ár frá útgáfu leyfis og gildir einungis fyrir svæði utan íbúðarhúsalóða og annarra úthlutaðra lóða.Óseyri 2a - umsókn um stöðuleyfi fyrir sumarhús
Málsnúmer 2014080022Björn Böðvarsson sækir um tímabundið stöðuleyfi fyrir sumarhús á Óseyri 2a. Húsið verður flutt á endanlega staðsetningu haustið 2015, í annað sveitarfélag. Samþykki lóðarhafa liggur fyrir.

Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi til eins árs.

Óseyri 2a - framlenging á stöðuleyfi
Málsnúmer BN000195Erindi dagsett 31.05.2010 þar sem Gunnar Malmquist og Hermundur Jóhannesson f.h. Vörubílstjórafélagsins Vals, kt. 670269-2059, sækja um framlengingu á bráðabirgða stöðuleyfi fyrir hús félagsins að Óseyri 2a á Akureyri til næstu fimm ára.

Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi til 31. maí 2015.

Laxagata 6 - umsókn um breytingar
Málsnúmer 2014070173Erindi dagsett 28. júlí 2014 frá Rögnvaldi Harðarsyni þar sem hann f.h. Sifjar Sigurðardóttur sækir um leyfi til að gera innan- og utanhúss breytingar á Laxagötu 6. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Hrísalundur 3 - umsókn um stöðuleyfi fyrir frystigáma
Málsnúmer 2013080004Erindi dagsett 13. ágúst 2014 þar sem Birgir Snorrason f.h. Brauðgerðar Kr. Jónssonar og Co. sf., kt. 480169-0859, sækir um áframhaldandi stöðuleyfi fyrir tvo frystigáma sem standa vestan við brauðgerðina að Hrísalundi 3, gámar þessir eru með klukku sem slekkur á þeim kl. 22.30 og kveikir kl. 07.30.

Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi til eins árs. Bent er á að uppfylla þurfi kröfur reglugerðar um hávaða.

Jaðarstún 1-3 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2014050117Erindi dagsett 20. maí 2014 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Virkni ehf., kt. 520809-0580, sækir um byggingarleyfi fyrir Jaðarstún 1-3. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Birgi Ágústsson. Innkomnar teikningar 8. ágúst 2014.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Jaðarstún 5-7 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2014050118Erindi dagsett 20. maí 2014 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Virkni ehf., kt. 520809-0580, sækir um byggingarleyfi fyrir Jaðarstún 5-7. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Birgi Ágústsson. Innkomnar teikningar 8. ágúst 2014.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Jaðarstún 13-15 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2014070119Erindi dagsett 17. júlí 2014 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. BB bygginga ehf., kt. 550501-2280, sækir um byggingarleyfi fyrir Jaðarstún 13-15. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Steinmar H. Rögnvaldsson. Innkomnar teikningar 12. ágúst 2014.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið