Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 176
- Kl. 10:15 - 11:30
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 176
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Sigríður María Hammer
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Guðríður Friðriksdóttir
- Valþór Brynjarsson
- fundarritari
Naustaskóli - 2. áfangi
Málsnúmer 2010080059Rætt um verkáætlun fyrir skólann.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að hafist verði handa við framkvæmdir á 2. áfanga við Naustaskóla á árinu 2011.

Fjárhagsáætlun 2011 - Fasteignir Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2010090169Farið yfir drög að fjárhagsáætluninni - 2. umræða

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar þakkar fyrir kynninguna. Unnið er áfram að áætlun.

Verkfundargerðir FA 2010
Málsnúmer 2010010174Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram til kynningar:\n58. verkfundur útboðs 3 v/menningarhúss dags. 8. október 2010.\n6. og 7. hönnunarfundur vegna nýs hjúkrunarheimilis dags. 21. og 29. september 2010.

Sigfús Karlsson fulltrúi Framsóknarflokksins óskar bókað:

Í tilefni ákvörðunar meirihluta bæjarstjórnar Akureyrarkaupstaðar, L-listans, um breytingu á byggingarstað fyrir hjúkrunarheimili úr Naustahverfi í Vestursíðu, vill fulltrúi Framsóknarflokksins bóka eftirfarandi:

Það vekur furðu að sá hæðarmunur sem er á gólfkóta fyrirhugaðrar byggingar og kóta á Vestursíðu og stígs við lóðarmörk er um 2 metrar samkvæmt 6. lið fundargerðar byggingarnefndar hússins frá 21. september 2010.

Einnig vekur það athygli í 4. lið fundargerðar sömu nefndar frá 29. september 2010 að farið sé að ræða um að breyta hönnun hússins til að aðlaga húsið að lóðinni.