Stjórn Akureyrarstofu - 191
25.06.2015
Hlusta
- Kl. 16:15 - 20:00
- Arkitektastofan Kollgáta - Kaupvangsstræti
- Fundur nr. 191
Nefndarmenn
- Logi Már Einarssonformaður
- Sigfús Arnar Karlsson
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Eva Dögg Fjölnisdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Hulda Sif Hermannsdóttirverkefnastjóri viðburða og menningarmála
- Skúli Gautasonframkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Silja Dögg Baldursdóttir L-lista mætti í forföllum Önnu Hildar Guðmundsdóttur.[line]
Menningarfélag Akureyrar - samrekstur LA, MH og SN
Málsnúmer 2014070163Fulltrúar Menningarfélags Akureyrar, Sigurður Kristinsson stjórnarformaður og Gunnar Ingi Gunnsteinsson framkvæmdastjóri, komu á fundinn og greindu frá reynslu af rekstri félagsins fyrstu mánuðina frá stofnun þess.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Sigurði og Gunnari fyrir komuna.
17. júní hátíðahöld
Málsnúmer 2015020072Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnastjóri viðburða og menningarmála á Akureyrarstofu kom á fundinn og flutti greinargerð um hátíðahöld 17. og 19. júní.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Huldu Sif fyrir komuna.