Bæjarráð - 3494
- Kl. 08:30 - 12:49
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3494
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Logi Már Einarsson
- Matthías Rögnvaldsson
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Aðgerðarhópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar - nefndir og deildir
Málsnúmer 2016020127Magnús Kristjánsson frá KPMG mætti á fundinn til þess að fara yfir vinnu aðgerðarhóps um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar.
Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss, Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri og Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Dómur Hæstaréttar nr. 396/2015
Málsnúmer 2014060169Lagður fram dómur Hæstaréttar nr. 396/2015.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Menntaskólinn á Tröllaskaga
Málsnúmer 2007100109Lagt fram til kynningar svar bæjarstjórnar Fjallabyggðar dagsett 11. febrúar 2016 við sáttatillögu Akureyrarkaupstaðar vegna húsnæðis Menntaskólans á Tröllaskaga.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samkomulagi við Fjallabyggð.
Hestamannfélagið Léttir - heimild til lántöku
Málsnúmer 2016020161Lagt fram erindi frá Hestamannafélaginu Létti dagsett 15. febrúar 2016 þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs fyrir lántöku að upphæð allt að 2,3 milljónum króna til tímabundinnar fjármögnunar á fjórhjóli til að nota við umhirðu skeljasandsgólfs í reiðhöll Léttis.
Bæjarráð heimilar Hestamannafélaginu Létti lántökuna.
Innkaupamál hjá Akureyrarbæ
Málsnúmer 2016020115Karl Guðmundsson verkefnastjóri mætti á fund bæjarráðs og fór yfir innkaupamál bæjarins og áframhaldandi aðild Akureyrarbæjar að rammasamningum Ríkiskaupa.
Vinabæir og erlend samskipti
Málsnúmer 2014090064Lögð fram niðurstaða vinnuhóps um erlend samskipti.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur Katrínu Björgu Ríkarðsdóttur að vinna áfram að málinu.
Kynjuð fjárhagsáætlanagerð
Málsnúmer 2011030090Kynnt verklag og eyðublað vegna kynjaðrar fjárhagsáætlunar.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð staðfestir gátlista vegna jafnréttismats og skyldar nefndir til að nota hann við ákvörðunartöku.
Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir veturinn 2015-2016
Málsnúmer 2015110022Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 11. febrúar 2016. Fundargerðin er í 7 liðum.
Bæjarráð vísar 4., 5. og 7. lið til framkvæmdadeildar, 6. lið til skipulagsdeildar, 1., 2. og 3. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.
Hverfisráð Grímseyjar - fundargerðir
Málsnúmer 2010070098Lagðar fram til kynningar fundargerðir 22. og 23. fundar hverfisráðs Grímseyjar dagsettar 19. og 24. október 2015. Fundargerðirnar má finna á netslóðinni:
http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/grimsey/fundargerdirTillaga til þingsályktunar um embætti umboðsmanns aldraðra, 14. mál
Málsnúmer 2016020095Lagt fram til kynningar erindi dagsett 5. febrúar 2016 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um embætti umboðsmanns aldraðra, 14. mál 2016. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 19. febrúar 2016 á netfangið nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/145/s/0014.html
Fjárhagsáætlun 2016 - framkvæmdadeild
Málsnúmer 20150800784. liður í fundargerð framkvæmdaráðs dagsett 22. janúar 2016:
Farið yfir tillögur að gjaldskrá fyrir Framkvæmdamiðstöð Akureyrarbæjar og framkvæmdaáætlun ársins 2016.
Framkvæmdaráð samþykkir framlagða gjaldskrá Framkvæmdamiðstöðvar fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarráðs ásamt viðauka vegna breytinga á tekjum.Bæjarráð samþykkir framlagða gjaldskrá Framkvæmdamiðstöðvar, en frestar gerð viðauka.