Umhverfis- og mannvirkjaráð - 46
- Kl. 08:15 - 11:20
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 46
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Jóhann Jónsson
- Gunnar Gíslason
- Berglind Bergvinsdóttir
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar
- Jón Birgir Gunnlaugssonverkefnastjóri umhverfismála
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður nýframkvæmda
- Hildigunnur Rut Jónsdóttirforstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
- Ketill Sigurður Jóelssonfundarritari
Snjómokstur í bæjarlandinu
Málsnúmer 2018120024Tekin fyrir fyrirspurn bæjarfulltrúa Gunnars Gíslasonar D-lista um snjómokstur í bæjarlandinu. Lagt fram minnisblað 1 dagsett 5. desember 2018 og minnisblað 2 dagsett 6. desember 2018. Forgangsröðun snjómoksturs má sjá á slóðinni: http://map.is/akureyri/
Við umræðu þessa dagskrárliðar leitaði formaður afbrigða til að taka á dagskrá málið Snjómokstur 2018 - viðauki við fjárhagsáætlun, sem verði 2. liður á dagskrá og var það samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum.
Jónas Vigfússon, Jón Hansen og Gunnþór Hákonarson frá Umhverfismiðstöð sátu fundinn undir þessum lið.Snjómokstur 2018 - viðauki við fjárhagsáætlun
Málsnúmer 2018120059Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að upphæð 50 milljónir króna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að sækja um viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að upphæð 50 milljónir.
Fylgiskjöl
Umhverfismiðstöð - rekstur tækja og véla
Málsnúmer 2018120028Lögð fram skýrsla um rekstur véla og tækja á Umhverfismiðstöð á árunum 2015-2018 dagsett 4. desember 2018.
Aksturssvæði við Hlíðarfjallsveg - umgengni vélhjólamanna KKA
Málsnúmer 2018120029Fyrirspurn frá Ólafi Kjartanssyni V-lista vegna umgengni vélhjólamanna KKA á svæðinu sem þeir fengu aukalega á milli skotsvæðis og Hlíðarfjallsvegar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð lýsir áhyggjum á ástandi gróðurfars á svæðinu og óskar eftir því að tekin verði upp umræða við skipulagssvið, frístundasvið og hlutaðeigandi aðila um að settar verði upp verklagsreglur um notkun svæðisins.
Sala tækja 2018 - Umhverfismiðstöð
Málsnúmer 2018110235Lögt fram fundargerð 5. fundar tækjakaupanefndar dagsetta 22. nóvember 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboðum hæstbjóðenda.
Fylgiskjöl
Kjarnaskógur - strandblaksvellir
Málsnúmer 2018050182Lagt fram minnisblað dagsett 5. desember 2018 vegna endurnýjunar á sandi í tveimur strandblaksvöllum síðastliðið sumar.
Samningur um vöktun á urðnunarstað Akureyrarbæjar á Glerárdal
Málsnúmer 2018120030Lögð fram drög að verksamningi um vöktun á urðunarstað Akureyrarbæjar á Glerárdal dagsett 4. desember 2018. Einnig lögð fram minnisblöð frá ÍSOR dagsett 7. júní 2018 og 21. september varðandi vöktunina.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlögð drög að verksamningi við Ísor um vöktun á urðunarstað Akureyrarbæjar á Glerárdal.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála vék af fundi.
Umhverfis- og samgöngustefna Akureyrarbæjar - verkefni UMSA
Málsnúmer 2018080975Umræða um stöðu verkefna UMSA.
Ytra-Krossanes - framtíðarsýn
Málsnúmer 2018120027Rætt um framtíðarsýn fyrir Ytra-Krossanes.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu málsins til 14. desember.
Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2019
Málsnúmer 2018080973Lögð fram til kynningar fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs fyrir árið 2019 og til afgreiðslu framkvæmdaráætlun 2019-2022.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framkvæmdaráætlun 2019-2022 og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Verkfundargerðir 2018
Málsnúmer 2018010235Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Glerárskóli leikskóli: 14. fundargerð verkefnisliðs dagsett 28. nóvember 2018.
Hlíðarskóli stækkun: 7. og 8. verkfundur dagsettir 27. nóvember og 4. desember 2018.
Naustahverfi Hagar: 20. verkfundur dagsettur 21. nóvember 2018.