Framkvæmdaráð - 221
- Kl. 08:15 - 10:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 221
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Halla Björk Reynisdóttir
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Sigfús Arnar Karlsson
- Helgi Már Pálsson
- Jón Birgir Gunnlaugsson
- Tómas Björn Hauksson
- Bergur Þorri Benjamínssonfundarritari
Strætisvagnar Akureyrar - ósk um kaup á notuðum stætisvagni 2010
Málsnúmer 2010050063Minnisblað dags. 28. apríl 2010 frá Stefáni Baldurssyni forstöðumanni Strætisvagna Akureyrar um kaup á notuðum strætisvagni, verðtilboð í biðskýli og hugsanleg kaup á nýjum bíl fyrir ferliþjónustu fatlaðra. \nStefán Baldursson sat fundinn undir þessum lið.

Framkvæmdaráð samþykkir að veita forstöðumanni Strætisvagna Akureyrar heimild til að kaupa notaðan strætisvagn fyrir allt að 15 milljónir á árinu 2011. Framkvæmdaráð vísar ákvörðuninni til bæjarráðs.

Fjárhagsáætlun 2011 - framkvæmdaráð
Málsnúmer 2010090168Framhald við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011. Lagt fram minnisblað framkvæmdadeildar dags. 4. nóvember 2010. \nStefán Baldursson forstöðumaður Strætisvagna Akureyrar sat fundinn að hluta undir þessum lið.

Framkvæmdaráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlunni og drögum að breyttri gjaldskrá til bæjarráðs.

Sjúkratryggingar Íslands - framlenging á samningi
Málsnúmer 2010110016Lögð fram drög, ódags., um framlengingu á samningi milli Sjúkratrygginga Íslands og Akureyrarkaupstaðar um þjónustu sjúkraflutningamanna við sjúkraflug með sjúkraflugvélum innanlands frá og með 1. janúar 2011 til og með 31. desember 2011.

Framkvæmdaráð samþykkir drögin og vísar þeim til bæjarráðs.

Isavia ohf - uppsögn þjónustusamnings um viðbúnaðarþjónustu á flugvellinum á Akureyri
Málsnúmer 2010110004Lagt fram bréf dags. 27. október 2010 frá Birni Óla Haukssyni forstjóra Isavia ohf um uppsögn á þjónustusamningi um viðbúnaðarþjónustu, vegna niðurskurðar og breytinga á flugvallarreglugerð.

Framkvæmdaráð samþykkir að fela Helga Má Pálssyni bæjartæknifræðingi að vinna áfram að málinu.