Íþróttaráð - 181
- Kl. 14:00 - 15:47
- Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 181
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Birna Baldursdóttir
- Ólína Freysteinsdóttir
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Alfa Dröfn Jóhannsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonforstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Unglingalandsmót UMFÍ á Akureyri 2015
Málsnúmer 2013010129Lagt fram til kynningar erindi dagsett 28. október 2015 frá 49. sambandsþingi UMFÍ þar sem bæjarstjórn Akureyrar er þakkað fyrir góða aðstöðu og móttökur, UFA fyrir góða framkvæmd og glæsilega umgjörð á 18. Unglingalandsmóti UMFÍ svo og sjálfboðaliðum fyrir það mikla sjálfboðaliðastarf sem lagt var fram í tengslum við mótið.
Íþróttaráð þakkar öllum þeim sem komu að skipulagi og framkvæmd Unglingalandsmóts UMFÍ á Akureyri 2015 fyrir góð störf og flott landsmót.
Íþróttaráð - kynjuð áætlunargerð
Málsnúmer 2015040026Farið yfir tölfræði tengda kynjaðri áætlunargerð.
Lagt fram til kynningar.Aðildarfélög ÍBA - áætlanir og ársreikningar
Málsnúmer 2012100168Farið yfir rekstur íþróttafélaga sem eru með rekstrarsamning við Akureyrarbæ.
Lagt fram til kynningar.Golfklúbbur Akureyrar - ósk um styrk vegna Íslandsmótsins í höggleik á Akureyri 2016
Málsnúmer 2015110149Erindi dagsett 18. nóvember 2015 frá Ágústi Jenssyni framkvæmdastjóra Golfklúbbs Akureyrar þar sem óskað er eftir fjárstyrk til að standa straum af kostnaði við Íslandsmótið í höggleik.
Íþróttaráð fagnar því að Íslandsmótið í höggleik verði haldið á Akureyri sumarið 2016.
Formanni falið að vinna málið áfram að ósk GA um kynningu á erindinu fyrir bæjarráð.Rekstrarsamningar íþróttamannvirkja og aðildarfélaga ÍBA
Málsnúmer 2015110251Lögð fram drög að endurnýjun rekstrarsamninga við aðildarfélög ÍBA.
Íþróttaráð samþykkir fyrirlögð drög að rekstrarsamningum við Golfklúbb Akureyrar og Skautafélag Akureyrar.
Fjárhagsáætlun 2016 - íþróttaráð
Málsnúmer 2015080072Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.