Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 1005
- Kl. 13:00 - 13:40
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 1005
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Rebekka Rut Þórhallsdóttirfulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
- Ólafur Elvar Júlíussonverkefnastjóri byggingarmála
- Katrín Rós Ívarsdóttirverkefnastjóri fasteignaskráningar
Skuggamói 18 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Málsnúmer 2025020587Erindi dagsett 13. febrúar 2025 þar sem Norðurorka tilkynnir um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi á lóð nr. 18 við Skuggamóa.
Byggingarfulltrúi hefur móttekið tilkynningu um framkvæmdina og staðfestir að hún er í samræmi við gildandi aðaluppdrætti og geti því fallið undir grein 2.3.5. í byggingarreglugerð um minniháttar framkvæmd sem er undanþegin byggingarleyfi.
Langimói 9-11 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2
Málsnúmer 2024121378Erindi dagsett 18. desember 2024 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Tréverks ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir tveimur 6 íbúða fjölbýlishúsum á lóð nr. 9-11 að Langamóa. Innkomin uppfærð gögn 18. febrúar 2025 eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Lyngmói 1-3-5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2
Málsnúmer 2024061732Erindi dagsett 18. febrúar 2025 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Trétaks ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum á þegar samþykktum aðaluppdráttum af fjölbýlishúsi á lóð nr. 1 við Lyngmóa. Innkomin gögn eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Háhlíð 4 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 1
Málsnúmer 2025020929Erindi dagsett 19. febrúar 2025 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Önnu Þóru Ísfold Rebekkudóttur sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss á húsi nr. 4 við Háhlíð. Innkomin gögn eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Norðurgata 3 og 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2
Málsnúmer 2024070876Erindi dagsett 19. febrúar 2025 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Trésmiðju Ásgríms Magnúss ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum á þegar samþykktum aðaluppdráttum af tveimur fjölbýlishúsum á lóð nr. 3 og 5 við Norðurgötu. Innkomin gögn eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Bugðusíða 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 1
Málsnúmer 2024121619Erindi dagsett 20. desember 2024 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Líkamsræktarinnar Bjargs ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir viðbyggingu við hús nr. 1 við Bugðusíðu. Innkomin gögn eftir Ragnar Frey Guðmundsson. Erindið fór í grenndarkynningu sem lauk án athugasemda 14. febrúar 2025.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.