Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks - 5
- Kl. 16:00 - 18:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 5
Nefndarmenn
- Guðrún Karitas Garðarsdóttirformaður
- Þórhallur Harðarson
- Halla Birgisdóttir Ottesen
- Sif Sigurðardóttirfulltrúi Þroskahjálpar NE
- Lilja Björg Jónsdóttirfulltrúi Grófarinnar
- Elmar Logi Heiðarssonfulltrúi Sjálfsbjargar
Starfsmenn
- Karólína Gunnarsdóttirfundarritari
Kynning á starfsemi Réttindagæslu fatlaðs fólks
Málsnúmer 2023120189Kynning á Réttindagæslu fatlaðs fólks.
Eiríkur Smith og Guðrún Pálmadóttur réttindagæslumenn sátu fundinn undir þessum lið.Hönnun á innilaug í Akureyrarsundlaug
Málsnúmer 2023120425Nú er verið að endurvekja og fullhanna innilaugina í Sundlaug Akureyrar. Það eru tvær hugmyndir í gangi. Samráðshópurinn var sáttur við tillögu 1 þegar hún var kynnt á sínum tíma.
Ágúst arkitekt hafði samband við þá sem sjá um uppbyggingu Grensáslaugar. Þau höfðu hætt við að hafa ramp ofan í laug, þess í stað sett lyftu.
Það er viss hætta á að einhverjum skriki fótur í rampi sökum halla á honum, erum alveg í efri mörkum á halla.
Ef þið viljið halda ykkur við tillögu 1 þá er það samt enn inn í myndinni.Samráðshópurinn heldur sig við tillögu 1, bæði ramp og lyftu.
Reglur um akstursþjónustu Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2023110731Lögð fram til umsagnar drög að endurskoðuðum reglum um akstursþjónustu Akureyrarbæjar.
Samráðshópurinn gerir ekki athugasemdir við endurskoðaðar reglur um akstursþjónustu. Samráðshópurinn leggur áherslu á að akstursþjónustan geti veitt þá þjónustu sem henni er ætlað að veita og til að svo geti orðið verði fleiri bílum bætt við í þjónustuna. Einnig mikilvægt að skoða þá útfærslu að hægt sé að nota ferðakort allan sólarhringinn sem myndi þá minnka álag á ferlibílana.
Erindi frá ÖBÍ varðandi samráðshópa og notendaráð
Málsnúmer 2023120201Beiðni barst frá Notendaráði ÖBÍ um að varafulltrúar fái fundarboð og fái að sitja alla fundi ráðsins.
Samráðshópurinn samþykkir setu varamanna á fundum samráðshópsins. Þeir munu fá sent fundarboð og er frjálst að mæta án þess að fá greiðslu.