Velferðarráð - 1298
- Kl. 14:00 - 15:45
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1298
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Hermann Ingi Arason
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Anna Marit Níelsdóttirforstöðumaður í félagsþjónustu
- Kristín Birna Kristjánsdóttirfundarritari
Reglur um félagslegt leiguhúsnæði Akureyrarbæjar 2019
Málsnúmer 2019030179Lögð fram drög að endurskoðuðum reglum um félagslegt leiguhúsnæði Akureyrarbæjar. Málið var áður á dagskrá á fundi velferðarráðs 20. mars.
Halldóra Hauksdóttir lögfræðingur fjölskyldusviðs og Magnús Valur Axelsson húsnæðisfulltrúi fjölskyldusviðs sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir reglur um félagslegt leiguhúsnæði Akureyrarbæjar og vísar málinu til bæjarráðs.
Fjárhagsaðstoð 2019
Málsnúmer 2019030386Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð janúar - febrúar 2019.
Aflið - samstarfssamningur 2019-2020
Málsnúmer 2019030392Endurnýjun á samstarfssamningi við Aflið - samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi lögð fyrir velferðaráð, en síðasti samningur rann út um síðustu áramót.
Velferðarráð samþykkir endurnýjun á samstarfssamningi við Aflið fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2019
Málsnúmer 2019030355Lagt fram til kynningar rekstryfirlit janúar - febrúar 2019.
Laufey Þórðardóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs sat fundinn undir þessum lið.