Fræðsluráð - 30
- Kl. 13:30 - 15:45
- Fjarfundur
- Fundur nr. 30
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Þorlákur Axel Jónsson
- Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
- Rósa Njálsdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Þuríður Sólveig Árnadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
- Erna Rós Ingvarsdóttir
- Anna Lilja Sævarsdóttirfulltrúi leikskólastjóra
- Atli Þór Ragnarssonfulltrúi foreldra leikskólabarna
- Bryndís Valgarðsdóttirfulltrúi skólastjóra
- Hildur Lilja Jónsdóttirfulltrúi ungmennaráðs
- Jóhann Gunnarssonfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- María Aðalsteinsdóttirfulltrúi grunnskólakennara
- María Aldís Sverrisdóttirvaramaður fulltrúa leikskólakennara
Endurskoðun menntastefnu 2018
Málsnúmer 2017080125Menntastefna Akureyrarbæjar lögð fram til staðfestingar.
Drög að menntastefnu Akureyrarbæjar voru send til umsagnar í ungmenna-, velferðar- og frístundaráði og stjórn Akureyrarstofu. Engar efnisbreytingar voru lagðar til í ráðunum en lögð áhersla á að samhliða afgreiðslu stefnunnar verði gerð aðgerðaáætlun og kostnaðarmat.
Drög að aðgerðaáætlun liggur fyrir og verður hún útfærð í nánu samstarfi við hvern skóla. Áætlað er að hún liggi fyrir til samþykktar í fræðsluráði eigi síðar en 5. október 2020.
Fræðsluráð samþykkir samhljóða framlagða menntastefnu og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Sveigjanleiki í opnunartíma leikskóla
Málsnúmer 2020050245Hildur Lilja Jónsdóttir fulltrúi ungmennaráðs kom til fundar kl. 14:10. <br />
Þórhallur Harðarson D-lista lagði fram ósk um að skoðaður verði sá möguleiki að auka sveigjanleika á opnunartíma leikskóla sumarið 2020 þar sem margir foreldrar hafa gengið á orlofsrétt sinn til að geta verið heima með börnum sínum á liðnum vikum.
Meirihluti fræðsluráðs samþykkir að opnunartímar leikskólanna verði óbreyttir sumarið 2020.
Þórhallur Harðarson D-lista sat hjá.Aðgengi grunnskóla að sundlaugum
Málsnúmer 2020050083Erindi dagsett 20. apríl 2020 barst frá skólastjórum grunnskóla Akureyrarbæjar vegna aðgengis skólanna að sundlaugum bæjarins.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra fræðslusviðs að vinna málið áfram í samstarfi við samfélagssvið.
Erindi frá trúnaðamönnum FG
Málsnúmer 2020050171Erindi dagsett 23. apríl 2020 frá trúnaðarmönnum Félags grunnskólakennara lagt fram.
Samband íslenskra sveitarfélaga fer með umboð Akureyrarbæjar í kjaraviðræðum við Félag grunnskólakennara þar sem kröfugerð málsaðila er leidd til lykta. Það er mat fræðsluráðs að mikilvægt sé að þeim viðræðum ljúki áður en afstaða er tekin til óska um breytingar á vinnutímaákvæði kjarasamnings kennara hjá Akureyrarbæ. Það ætti að vera keppikefli samningsaðila að stuðla að auknum sveigjanleika í starfsumhverfi grunnskólakennara og hvetur fræðsluráð samningsaðila til að leita allra leiða svo ljúka megi gerð nýs kjarasamnings.
Skóladagatal leik- og grunnskóla 2020-2021
Málsnúmer 2019110483Skóladagatöl leik- og grunnskóla fyrir skólaárið 2020-2021 lögð fram til staðfestingar
Fræðsluráð staðfestir framlögð skóladagatöl leik- og grunnskóla fyrir skólaárið 2020-2021 með þeim fyrirvara að tekið verði tillit til þeirra leikskóla sem þurfa að gera breytingar á sínum áætlunum vegna kórónuveirufaraldursins. Þegar staðfest er hvernig því verður háttað er mikilvægt að fræðsluráð taki þá breytingu til umfjöllunar.
Fylgiskjöl
- Yfirlit Skóladagatal Grunnskólar 2020-2021.pdf
- Yfirlit Leikskólar 2020-2021.pdf
- Síðuskóli LOKA Skoladagatal-2020-2021_með uppbrotsdögum_.pdf
- Oddeyrarskóli LOKA 2020-2021_med fristundarlokun.pdf
- Lundarskóli LOKA Skóladagatal-2020-2021.pdf
- Naustaskóli LOKA Skóladagatal 2020 - 2021.pdf
- Hrísey LOKA Skoladagatal-2020-2021.pdf
- Giljaskóli LOKA Skoladagatal-2020-2021_lok2.pdf
- Hlíðarskóli LOKA Skoladagatal-2020-2021 (2).pdf
- Glerárskóli LOKA Skoladagatal-2020-2021.pdf
- Iðavöllur Skóladagatal 2020-2021.pdf
- Hulduheimar Kot Skóladagatal 2020-2021.pdf
- Hulduheimar Sel Skóladagatal 2020-2021 (003).pdf
- Hólmasól Skóladagatal-2020-2021.pdf
- Naustatjörn Skóladagatal 2020-2021.pdf
- Pálmholt Skóladagatal-2020-2021.pdf
- Tröllaborgir-Árholt Skóladagatal-2020-2021.pdf
- Kiðagil Skóladagatal 2020-2021.pdf
- Krógaból Skóladagatal-2020-2021.pdf
- Lundarsel Skóladagatal 2020-2021.pdf
Viðurkenningar fræðsluráðs 2020
Málsnúmer 2020050302Samkvæmt samþykkt fræðsluráðs frá 21. janúar 2019 skal valnefnd gera tillögu til fræðsluráðs um fjölda tilnefninga ár hvert. Tilnefnt er í tveimur flokkum, annars vegar í flokki nemenda og hins vegar í flokknum skólar/starfsfólk/verkefni. Alls bárust 8 tilnefningar vegna nemenda og 18 tilnefningar bárust vegna skólar/starfsfólk/verkefni.
Tillaga valnefndar er að veittar verði eftirfarandi viðurkenningar:
Í flokki nemenda 7 viðurkenningar.
Í flokki starfsfólks 13 viðurkenningar, þar af 10 til starfsfólks og 3 fyrir verkefni.
Fræðsluráð staðfestir tillöguna.
Rekstur fræðslumála 2020
Málsnúmer 2020010575Forstöðumaður rekstrar lagði fram til kynningar og gerði grein fyrir rekstrarstöðu fræðslumála fyrstu fjóra mánuði ársins.