Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 878
- Kl. 13:00 - 13:30
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 878
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Katrín Rós Ívarsdóttirfundarritari
Steindórshagi 9-15 - umsókn um leyfi til að byggja skúr á lóðarmörkum bæjarins
Málsnúmer 2022070647Erindi dagsett 21. júlí 2022 þar sem Guðmundur Bjarnar Guðmundsson sækir um leyfi fyrir skúr á lóðarmörkum bæjarins. Meðfylgjandi er samþykki eigenda Steindórshaga 9, 11 og 13.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hlíðarvellir 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022080721Erindi dagsett 18. ágúst 2022 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd atNorth ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir atvinnuhúsnæði á lóð nr. 1 við Hlíðarvelli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hlíðarfjall, lyftuhús - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022080520Erindi dagsett 22. ágúst 2022 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir stækkun neðra lyftuhúss í Hlíðarfjalli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Margrétarhagi 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022042900Erindi dagsett 17. ágúst 2022 þar sem Anna Margrét Hauksdóttir fyrir hönd BF bygginga ehf., sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir raðhúsi á lóð nr. 1 við Margrétarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Önnu Margréti Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Hringteigur 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild
Málsnúmer 2022081060Erindi dagsett 24. ágúst 2022 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Verkmenntaskólans á Akureyri sækir um byggingarheimild fyrir frístundahúsi til flutnings á lóð nr. 2 við Hringteig. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.