Velferðarráð - 1365
- Kl. 14:00 - 15:53
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1365
Nefndarmenn
- Hulda Elma Eysteinsdóttirformaður
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Karl Liljendal Hólmgeirsson
- Alfa Dröfn Jóhannsdóttir
- Snæbjörn Ómar Guðjónsson
- Elsa María Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karólína Gunnarsdóttirþjónustustjóri velferðarsviðs
- Kristín Birna Kristjánsdóttirfundarritari
Reglur Akureyrarbæjar um fjárhagsaðstoð
Málsnúmer 2023020910Lögð fram drög að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð Akureyrarbæjar.
Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.Rafræn fræðslugátt fyrir starfsmenn velferðarsviðs
Málsnúmer 2023020863Rafræn fræðslugátt fyrir starfsmenn velferðarsviðs kynnt. Verkefnið var unnið í samstarfi við Símey símenntunarmiðstöð.
Kristinn Már Torfson forstöðumaður, Kristín Birna Kristjánsdóttir verkefnastjóri og Ólafur Örn Torfason forstöðumaður sátu fundinn undir þessum lið.NPA á Akureyri - almennt
Málsnúmer 2022020569Lagt fram minnisblað dagsett 22. febrúar 2023 um stöðu Akureyrarbæjar gagnvart ríkinu vegna NPA samninga og um bið eftir þjónustu fyrir fólk með umfangsmiklar stuðningsþarfir.
Velferðarráð Akureyrarbæjar skorar á félags- og vinnumarkaðsráðherra að standa við yfirlýsingar um framlengingu samninga ríkisins um NPA (Notendastýrða persónulega aðstoð) við sveitarfélögin, þar sem einstaklingar bíða nú þegar eftir þjónustu og ekki hafa fengist svör um útdeilingu fjármagns vegna NPA samninga fyrir árið 2023.