Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 737
- Kl. 13:00 - 13:45
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 737
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Gránufélagsgata 4 - umsókn um breytingar á innra skipulagi
Málsnúmer 2017040047Erindi dagsett 16. ágúst 2019 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd RS fasteigna ehf., kt. 701213-0170, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi í húsi nr. 4 við Gránufélagsgötu. Meðfylgjandi er teikning eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Rangárvellir 2 hús nr. 3 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2018120106Erindi dagsett 21. ágúst 2019 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 1-3 við Rangárvelli 2. Fyrirhugað er að færa mötuneytið milli húsanna. Meðfylgjandi er teikning eftir Fanneyju Hauksdóttur og brunahönnun Böðvars Tómassonar.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Geirþrúðarhagi 1 - fyrirspurn vegna jarðvegsskipta
Málsnúmer 2019080371Erindi dagsett 20. ágúst 2019 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Trétaks ehf., kt. 551087-1239, leggur inn fyrirspurn varðandi jarðvegsskipti á lóð nr. 1 við Geirþrúðarhaga. Fyrirhugað er að byggja þar fjölbýlishús. Meðfylgjandi er teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi heimilar jarðvegsskipti á grundvelli fyrirliggjandi tillöguteikninga. Ekki er tekin afstaða til tillöguteikninganna að öðru leyti.
Hringteigur 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi til flutnings
Málsnúmer 2019080391Erindi dagsett 21. ágúst 2019 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson fyrir hönd Verkmenntaskólans á Akureyri, kt. 531083-0759, sækir um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi til flutnings við Hringteig 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.