Bæjarstjórn - 3386
- Kl. 16:00 - 19:19
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3386
Nefndarmenn
- Matthías Rögnvaldssonforseti bæjarstjórnar
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Dagbjört Elín Pálsdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Logi Már Einarsson
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Njáll Trausti Friðbertsson
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Bæjarstjórn - ósk um tímabundið leyfi
Málsnúmer 2016010209Lagt fram erindi dagsett 30. janúar 2016 frá Sigríði Huld Jónsdóttur bæjarfulltrúa S-lista þar sem hún óskar eftir tímabundnu leyfi frá störfum í bæjarstjórn frá 1. febrúar - 1. mars 2016.
Bæjarstjórn samþykkir beiðni Sigríðar Huldar Jónsdóttur með 11 samhljóða atkvæðum.
Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum 2014-2018
Málsnúmer 2014060234Lögð fram tillaga S-lista Samfylkingar um breytingu á skipan aðal- og varamanns í samfélags- og mannréttindaráði og varamanns í íþróttaráði svohljóðandi:
Samfélags- og mannréttindaráð:
Dagbjört Elín Pálsdóttir, tekur sæti aðalmanns í stað Eiðs Arnars Pálmasonar.
Ólína Freysteinsdóttir tekur sæti varamanns í stað Dagbjartar Elínar Pálsdóttur.
Íþróttaráð:
Arnar Þór Jóhannesson tekur sæti varamanns í stað Ólínu Freysteinsdóttur.Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.
Reykjavíkurflugvöllur - framtíðarstaðsetning
Málsnúmer 2007110127Bæjarfulltrúi Njáll Trausti Friðbertsson D-lista óskaði eftir umræðu um sjúkraflugið, Reykjavíkurflugvöll og Landspítalann.
Lögð fram tillaga að bókun svohljóðandi:
Bæjarstjórn Akureyrar skorar á ríkisstjórn Íslands og borgarstjórn Reykjavíkur að tryggja óskerta starfsemi Reykjavíkurflugvallar og tryggja þar með öryggishagsmuni íbúa landsbyggðanna, a.m.k. þangað til jafngóð eða betri lausn finnst. Það er með öllu ólíðandi að dregið verði úr öryggi sjúklinga og slasaðra sem þurfa að komast með hraði á Landspítalann þar sem staðsett er sérhæfð þjónusta s.s. hjartaþræðingar, heila- og taugaskurðlækningar og vökudeild.
Árið 2015 voru 752 einstaklingar fluttir í sjúkraflugi þar af rúmlega 85% með flugvélum Mýflugs og tæplega 15% með þyrlum Landhelgisgæslunnar.
Því miður er óraunhæft að ætla að í náinni framtíð skapist þær aðstæður í íslenskri heilbrigðisþjónustu að ekki verði þörf á að koma mörgum af erfiðustu tilfellunum sem koma upp á landsbyggðunum á Landspítalann við Hringbraut.
Mikilvægt er að aðgengi íbúa landsbyggðanna að öflugustu heilbrigðisþjónustu landsmanna sé tryggt.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða bókun með 11 samhljóða atkvæðum.Starfsáætlun og stefnuumræða nefnda 2016 - stjórn Akureyrarstofu
Málsnúmer 2016010065Starfsáætlun og stefnuumræða stjórnar Akureyrarstofu.
Í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar frá 21. apríl 2015 um að formaður fastanefndar sem ekki á sæti í bæjarstjórn, mæti á fund bæjarstjórnar, hafi framsögu, taki þátt í umræðum og svari fyrirspurnum þegar umræða um stefnu og starfsáætlun málaflokksins fer fram, mætti Unnar Jónsson formaður stjórnar Akureyrarstofu og gerði grein fyrir starfsáætlun stjórnarinnar.Almennar umræður.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 2010090095Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.