Velferðarráð - 1243
- Kl. 14:00 - 15:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1243
Nefndarmenn
- Erla Björg Guðmundsdóttirformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Halldóra Kristín Hauksdóttir
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirframkvæmdastjóri
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri
- Jón Hrói Finnssonframkvæmdastjóri búsetudeildar
- Bryndís Dagbjartsdóttirfundarritari
Sérstakur húsnæðisstuðningur - reglur
Málsnúmer 2016120021Lögð fram að nýju drög að nýjum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning samkvæmt fyrirmælum velferðarráðs þann 7. desember sl.
Þessum lið var frestað á fundi velferðarráðs þann 21. desember sl.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri, Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu á fjölskyldudeild og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð þakkar fyrir kynninguna og samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.
Undanþága frá reglum um leiguhúsnæði 2016 - áfrýjanir
Málsnúmer 2016100006Erindi vegna undanþágu frá reglum um leiguhúsnæði Akureyrarbæjar tekið fyrir að nýju. Var áður á dagskrá velferðarráðs þann 5. október, 16. nóvember og 21. desember sl.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri, Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu á fjölskyldudeild og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild sátu fundinn undir þessum lið.Trúnaðarmál eru bókuð í trúnaðarbók velferðarráðs.