Félagsmálaráð - 1144
- Kl. 14:00 - 17:00
- Heilsugæslustöðin - fundarsalur 4. hæð
- Fundur nr. 1144
Nefndarmenn
- Inda Björk Gunnarsdóttirformaður
- Dagur Fannar Dagsson
- Oktavía Jóhannesdóttir
- Sif Sigurðardóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Pétur Maack Þorsteinssonáheyrnarfulltrúi
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirfundarritari
Fjárhagserindi 2012 - áfrýjanir
Málsnúmer 2012010019Ester Lára Magnúsdóttir og Snjólaug Jóhannesdóttir félagsráðgjafar á fjölskyldudeild kynntu áfrýjanir í fjárhagsaðstoð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.
Aðgerðaráætlun vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis
Málsnúmer 2009030082Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK, Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar kynntu drög að endurskoðaðri aðgerðaráætlun vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis.

Afgreiðslu frestað.

Heilsugæslustöðin á Akureyri - minnisblað til ráðherra 2012
Málsnúmer 2012050146Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK sagði frá fundi í Velferðarráðuneytinu um stöðu HAK og lagði fram minnisblað dags. í apríl 2012 sem afhent var velferðarráðherra.

Heilsugæslustöðin á Akureyri - starfsemi 2012
Málsnúmer 2012050153Karólína Stefánsdóttir yfirfjölskylduráðgjafi, Þórir V. Þórisson yfirlæknir og Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri á HAK fóru yfir stöðuna og starfsemina á heilsugæslunni. Lagðar fram upplýsingar um fjölskylduráðgjöfina á HAK og námsstefnuna Foreldrar í vanda - börn í vanda, sem haldin var 2. og 3. maí sl.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna og tekur undir áhyggjur stjórnenda vegna álags á stofnunina og áhrif þess á þjónustuna.

Heimahjúkrun og heimaþjónusta 2012
Málsnúmer 2012050154Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK, Nína Hrönn Gunnardóttir forstöðumaður heimahjúkrunar, Bergdís Ösp Bjarkadóttir forstöðumaður heimaþjónustu og Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar fóru yfir stöðuna í heimahjúkrun og heimaþjónustu. Lagt fram minnisblað dags. 18. maí 2012.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

SÁÁ - styrkbeiðni vegna reksturs göngudeildar 2012
Málsnúmer 2011100092Lagt fram erindi dags. 8. mars 2012 frá Ásgerði Th. Björnsdóttur framkvæmdastjóra fjármálasviðs SÁÁ þar sem óskað er eftir því að samningur verði gerður um áframhaldandi þjónustu SÁÁ á Akureyri.

Félagsmálaráð ákveður að vinna að áframhaldandi samningi við SÁÁ til eins árs og felur Guðrúnu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar að undirbúa málið.