Bæjarráð - 3305
- Kl. 09:00 - 11:35
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3305
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Halla Björk Reynisdóttir
- Inda Björk Gunnarsdóttir
- Hermann Jón Tómasson
- Ólafur Jónsson
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Sigurður Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Jón Bragi Gunnarssonhagsýslustjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Málefni aldraðra
Málsnúmer 2012010312Rætt um málefni aldraðra í framhaldi af fyrirspurn Ólafs Jónssonar D-lista í bæjarráði.\nBrit Bieltvedt framkvæmdastjóri Öldrunaheimila Akureyrarbæjar, Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar mættu á fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð þakkar Brit, Soffíu og Margréti yfirferð um stöðuna í málefnum aldraðra.

Eyþing - fundargerðir
Málsnúmer 2010110064Lögð fram til kynningar fundargerð 226. fundar stjórnar Eyþings dags. 16. desember 2011.

Sörlaskjól 7 - gatnagerðargjöld
Málsnúmer 2009110061Tekið fyrir að nýju, áður á dagská bæjarráðs 5. janúar sl. en þá fól bæjarráð fjármálastjóra, bæjarlögmanni og skipulagsstjóra að vinna umsögn um erindi frá Hólmgeiri Valdemarssyni dags. 23. desember 2011 þar sem hann fer fram á niðurfellingu eða afslátt af gatnagerðargjaldi fyrir Sörlaskjól 7 á Akureyri vegna jarðvegsdýptar.

Bæjarráð staðfestir fyrri ákvörðun sína frá 8. september 2011 og hafnar erindinu.

Vetraríþróttamiðstöð Íslands - tilnefning fulltrúa í stjórn
Málsnúmer 2012010300Erindi dags. 18. janúar 2012 frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem óskað er eftir tilnefningu tveggja fulltrúa Akureyrarbæjar og tveggja til vara í stjórn Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands frá 1. janúar 2012 til 31. desember 2015. Annar fulltrúi Akureyrarbæjar er formaður stjórnar. \nÓskað er eftir að tilnefningin verði send ráðuneytinu í síðasta lagi 27. janúar nk.
Bæjarráð tilnefnir Hlín Bolladóttur sem verði formaður og Árna Óðinsson sem aðalmenn Akureyrarbæjar í stjórn Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands og Nóa Björnsson og Steinunni Hebu Finnsdóttur sem varamenn þeirra.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar - þriggja ára áætlun 2013-2015
Málsnúmer 2012010262Unnið að gerð þriggja ára áætlunar 2013-2015.