Stjórn Akureyrarstofu - 133
20.11.2012
Hlusta
- Kl. 15:00 - 16:30
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 133
Nefndarmenn
- Sigmundur Ófeigssonvaraformaður
- Jón Hjaltason
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Matthías Rögnvaldssonáheyrnarfulltrúi
- Sigfús Arnar Karlssonáheyrnarfulltrúi
- Unnsteinn Jónssonáheyrnarfulltrúi
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Verkefnisstjórn um mótun atvinnustefnu
Málsnúmer 2011110167Lögð fram tillaga að erindisbréfi fyrir faglega verkefnisstjórn um áframhaldandi vinnu við mótun atvinnustefnu fyrir Akureyrarbæ. Fráfarandi verkefnisstjórn leggur til að tveir sem áttu sæti í henni starfi áfram að málinu og að tveir komi frá hagsmunaaðilum utan bæjarkerfisins. Hreinn Þór Hauksson verkefnisstjóri atvinnumála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir erindisbréfið. Í verkefnisstjórninni munu sitja fyrir hönd stjórnar Akureyrarstofu Sigmundur Ófeigsson og Unnsteinn Jónsson. Fjóla Björk Jónsdóttir, aðjunkt við viðskiptadeild Háskólans á Akureyri og Ingibjörg Ringsted, framkvæmdastjóri Lostætis Akureyri sitja fyrir hönd annarra hagsmunaaðila í stjórninni.Endurskoðun menningarstefnu Akureyrarbæjar - opinn kynningarfundur
Málsnúmer 2011020012Farið yfir drög að endurnýjaðri menningarstefnu sem vinnuhópur stjórnarinnar hefur sett saman og kynnt verða á opnum fundi þann 27. nóvember nk. Ýmsar athugasemdir komu fram í umræðunum sem tekið verður tillit til í vinnslu draganna.\nHulda Sif Hermannsdóttir verkefnisstjóri viðburða og menningarmála á Akureyrarstofu sat fundinn undir þessum lið.
<DIV><DIV> </DIV></DIV>