Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra - 2
- Kl. 13:30 - 14:30
- Kaffistofa framkvæmdadeild
- Fundur nr. 2
Nefndarmenn
- Bergur Þorri Benjamínssonformaður
- Kristín Sigfúsdóttir
- Lilja Guðmundsdóttir
- Helgi Snæbjarnarson
- Sigurður Guðmundsson
- Leifur Þorsteinssonfundarritari
- Jón Heiðar Daðasonáheyrnarfulltrúi
Heilsugæslustöðin á Akureyri - lyftuskipti
Málsnúmer 2010090099Bréf dags. 19. maí 2010 frá Margréti Guðjónsdóttur framkvæmdastjóra Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri um endurnýjun fólkslyftu í húsnæði stofnunarinnar.

Það er álit samstarfsnefndar um ferlimál fatlaðra að aðgengi að stofnuninni verði viðunandi eftir lyftuskiptin. Samkvæmt byggingarreglugerð þarf rýmið inn í lyftunni að vera að lágmarki 110 x 140 cm og hurðarop 80 cm.

Akureyrarflugvöllur - deiliskipulagsbreyting
Málsnúmer 2010040025Bréf dags. 2. september 2010 frá Önnu Bragadóttir f.h. skipulagsstjóra þar sem óskað er eftir umsögn samstarfsnefndar um ferlimál fatlaðra um nýtt deiliskipulag fyrir Akureyrarflugvöll.

Nefndin leggur áherslu á að gert verði ráð fyrir upphituðum bílastæðum fyrir fatlaða sem næst inngöngum og leiðir að þeim upphitaðar.

Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra
Málsnúmer 2010090062Lögð fram drög að bréfi til stjórnsýslunefndar.

Nefndin samþykkir að fela formanni nefndarinnar að senda erindi til stjórnsýslunefndar þar sem farið er fram á að heiti nefndarinnar, skipan í nefndina og starfsskyldur (erindisbréf) verði skilgreint.

Ferðamannastaðir á Íslandi - bætt aðstaða
Málsnúmer 2010070043Tölvubréf dags. 8. júlí 2010 frá Jóni Gunnari Benjamínssyni vegna verkefnis sem hann er að vinna að fyrir Ferðamálastofu um bætt aðgengi að ferðamannastöðum á Íslandi.\n

Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra samþykkir að óska eftir því við framkvæmdaráð að Kjarnaskógur og Lystigarðurinn verði framlag Akureyrarkaupstaðar til verkefnis Ferðamálastofu "bætt aðgengi að ferðamannastöðum á Íslandi".

Nefndin áskilur sér þó rétt til að óska eftir að fleiri stöðum verði bætt við á seinni stigum.