Íþróttaráð - 134
- Kl. 14:00 - 16:00
- Íþróttamiðstöð Giljaskóla
- Fundur nr. 134
Nefndarmenn
- Tryggvi Þór Gunnarssonformaður
- Þorvaldur Sigurðsson
- Þuríður Árnadóttir
- Árni Óðinsson
- Erlingur Kristjánsson
- Anna Jenný Jóhannsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Einar Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
- Örvar Sigurgeirssonáheyrnarfulltrúi
- Ellert Örn Erlingssonfundarritari
Aðildarfélög ÍBA - áætlanir og ársreikningar
Málsnúmer 2012100168Lagt fram til kynningar yfirlit frá Karli Guðmundssyni verkefnastjóra innra eftirlits dags. 28. maí 2013 yfir ársreikninga Golfklúbbs Akureyrar, Íþróttafélagsins Þórs, Knattspyrnufélags Akureyrar og Skautafélags Akureyrar á árunum 2003-2012.

Íþróttaráð þakkar Karli fyrir samantektina.

Starfsáætlun íþróttaráðs 2013
Málsnúmer 2013010128Drög að starfs- og fundaráætlun íþróttaráðs fyrir haustið 2013 lögð fram.

Íþróttaráð samþykkir starfs- og fundaráætlun ráðsins fyrir haustið 2013.

Frjálsíþróttasamband Íslands - beiðni um stuðning við kaup á rafmagnstímatökutækjum o.fl.
Málsnúmer 2013060115Erindi dags. 7. júní 2013 frá Jónasi Egilssyni framkvæmdarstjóra Frjálsíþóttasambands Íslands þar sem óskað er eftir stuðningi við kaup á rafmagnstímatökubúnaði og öðru því sem nauðsynlegt er til að halda mót sem uppfyllir bæði alþjóðlegar kröfur og skilyrði til að staðfesta árangur á alþjóðlega vísu.

Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.

Steinnes - beiðni um áframhaldandi leigu á húsinu.
Málsnúmer 2013050311Á fundi sínum þann 7. júní 2013 gerði stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar eftirfarandi bókun:\nLögð fram beiðni frá Níelsi Karlssyni ábúanda í Steinnesi um að framlengja leigusamninginn um 3 ár.\nStjórn Fasteigna Akureyrarbæjar óskar eftir umsögn íþróttaráðs um málið.

Íþróttaráð frestar erindinu.

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2014-2017
Málsnúmer 2013050198Rammi og forsendur fjárhagsáætlunar fyrir starfsárið 2014 lagðar fram til kynningar.

Anna Jenný Jóhannsdóttir áheyrnarfulltrúi D-lista vék af fundi kl. 15:08.$line$
Endurnýjun áhalda og búnaðar í íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2012090204Tillögur forstöðumanna íþróttamannvirkja um endurnýjun og viðhald áhalda og búnaðar kynntar.

Íþróttaráð forgangsraðar og samþykkir tillögur forstöðumanna íþróttamannvirkja um endurnýjun og viðhald áhalda og búnaðar. Íþróttaráð vísar tillögunum til stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar og óskar eftir að Fasteignir Akureyrarbæjar komi að kostnaði við viðhald og endurnýjun áhalda og búnaðar í íþróttamannvirkjum bæjarins.

Íþróttadeild - langtímaáætlun
Málsnúmer 2013030343Unnið að langtímaáætlun málefna sem heyra undir íþróttaráð.

Íþróttaráð þakkar Samúel Jóhannssyni forstöðumanni Íþróttamiðstöðvar Giljaskóla fyrir gestristnina og Erlu Ormarsdóttur framkvæmdarstjóra FIMAK fyrir kynnisferð um íþróttaaðstöðuna í Giljaskóla.