Bæjarstjórn - 3438
- Kl. 16:00 - 18:00
- Hamrar í Hofi
- Fundur nr. 3438
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirforseti bæjarstjórnar
- Dagbjört Elín Pálsdóttir
- Hlynur Jóhannsson
- Andri Teitsson
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Þórhallur Jónsson
Starfsmenn
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirforstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar ritaði fundargerð
Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa
Málsnúmer 2009090017Umræða um Siðareglur kjörinna fulltrúa í Akureyrarkaupstað.
Í 29. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 segir:
"Sveitarstjórn skal setja sér siðareglur sem sendar skulu ráðuneytinu til staðfestingar. Ef siðareglur eru í gildi skal ný sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til endurskoðunar þeirra. Ef niðurstaðan er sú að siðareglur þarfnist ekki endurskoðunar halda þær gildi sínu. Tilkynna skal ráðuneytinu um þá niðurstöðu."
Halla Björk Reynisdóttir tók til máls og fór yfir helstu atriði reglnanna.
Umræður urðu um reglurnar og endurskoðun þeirra og tóku þá til máls Sóley Björk Stefánsdóttir, Eva Hrund Einarsdóttir og Andri Teitsson.Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að vísa endurskoðun siðareglnanna til starfshóps sem skipaður hefur verið og hefur það hlutverk að yfirfara siðareglur og nýliðafræðslu kjörinna fulltrúa auk þess að útbúa viðbragðsáætlun vegna ofbeldis, áreitis og/eða kynferðislegrar áreitni sem kjörnir fulltrúar kunna að verða fyrir í störfum sínum fyrir bæinn í kjölfar #metoo umræðu í samfélaginu.
Fylgiskjöl
Öldrunarheimili Akureyrar - framtíðaruppbygging
Málsnúmer 2018070458Rætt um framtíðaruppbyggingu Öldrunarheimila Akureyrar (ÖA) og tengsl hennar við aðra þjónustu við aldraða íbúa.
Guðmundur Baldvin Guðmundsson tók til máls og kynnti umfjöllun og umræður um framtíðaruppbyggingu ÖA og þróun öldrunarþjónustu sem fram hafa farið að undanförnu m.a. á vettvangi bæjarráðs, öldungaráðs og velferðarráðs.
Í umræðum tóku til máls Gunnar Gíslason, Sóley Björk Stefánsdóttir, Andri Teitsson, Guðmundur Baldvin Guðmundsson og Hilda Jana Gísladóttir.Fylgiskjöl
Hafnarstræti 73 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Málsnúmer 2018050195Liður 3 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 15. ágúst 2018:
Á fundi skipulagsráðs 30. maí sl. var samþykkt að heimila eiganda Hafnarstrætis 73 að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina í samræmi við umsókn um hækkun núverandi húss um eina hæð. Er tillaga Landslags ehf. um breytingu á deiliskipulagi nú lögð fram og felst hún í að skilmálum verði breytt á þann veg að heimilt verði að bæta hæð ofan á núverandi hús, að vegghæð verði allt að 11 m í stað 8,4 m og mænishæð 13,2 m í stað 10,6 m. Byggingarmagn eykst úr 568 m² í 780 m² og nýtingarhlutfall verður 1,30 í stað 0,95.
Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Ingibjörg Ólöf Isaksen tók til máls og kynnti tillögu skipulagsráðs.Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsráðs með 11 samhljóða atkvæðum.
Fylgiskjöl
Málefnasamningur um meirihlutasamstarf kjörtímabilið 2018-2022
Málsnúmer 2018060455Umræða um málefnasamning meirihluta bæjarstjórnar að ósk Gunnars Gíslasonar D-lista með hliðsjón af bókun minnihlutans á síðasta fundi bæjarstjórnar þar sem óskað var eftir skriflegum svörum meirihlutans við spurningum sem minnihluti bæjarstjórnar lagði fram á fundinum.
Málshefjandi Gunnar Gíslason tók til máls og spurði m.a. hvort von væri á skriflegum svörum eins og um var beðið.
Í umræðum tóku til máls Halla Björk Reynisdóttir, Hilda Jana Gísladóttir, Ingibjörg Ólöf Isaksen, Gunnar Gíslason, Sóley Björk Stefánsdóttir, Eva Hrund Einarsdóttir, Guðmundur Baldvin Guðmundsson, Gunnar Gíslason (í annað sinn), Guðmundur Baldvin Guðmundsson (í annað sinn), Ingibjörg Ólöf Isaksen (í annað sinn) og Hilda Jana Gísladóttir (í annað sinn).Fylgiskjöl