Umhverfis- og mannvirkjaráð - 22
- Kl. 14:30 - 17:45
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 22
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Eiríkur Jónsson
- Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Steindór Ívar Ívarssonforstöðumaður viðhaldsdeildar
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður nýframkvæmda
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Drottningarbrautarstígur - Leikhúsbrú
Málsnúmer 2017100322Lögð fram tilboð sem bárust í jarðvinnu og staurarekstur við gerð Leikhúsbrúarinnar. Alls bárust þrjú tilboð:
GV Gröfur ehf. 25.804.300 147%
Skútaberg ehf. 27.681.250 158%
Árni Helgason ehf. 18.838.000 107%
Kostnaðaráætlun 17.557.000Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Árna Helgason ehf.
Umhverfis- og mannvirkjasvið - gjaldskrár 2018
Málsnúmer 2017110168Lagðar fram tillögur að óbreyttum gjaldskrám fyrir árið 2018 nema gjaldskrá sorphirðugjalda. Lagt er til að sorphirðugjald verði hækkað um 2,5% frá árinu 2017.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir gjaldskrárnar og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
Hestamannafélagið Léttir - aðkoma að hesthúsum/reiðhöll í Hlíðarholtshverfi og að Lögmannshlíð
Málsnúmer 2017110016Lagt fram erindi dagsett 30. október 2017 frá Hestamannafélaginu Létti um að aðkoma frá Hlíðarfjallsvegi að Reiðhöllinni á Hlíðarholti og Dýraspítalanum í Lögmannshlíð verði endurbætt og malbikuð á árinu 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð getur ekki orðið við erindinu þar sem það rúmast ekki innan þriggja ára fjárhagsáætlunar en unnið verður að viðhaldi á veginum á árinu 2018.
Fjárhagsáætlun 2018 - umhverfis- og mannvirkjasvið
Málsnúmer 2017050203Unnið að nýframkvæmdaáætlun 2018-2020.
Meirihluti umhverfis- og mannvirkjaráðs samþykkir framlagða framkvæmdaáætlun fyrir fasteignahlutann.
Gunnar Gíslason D-lista sat hjá við afgreiðsluna.
Meirihluti umhverfis- og mannvirkjaráðs samþykkir framlagða framkvæmdaáætlun fyrir Umhverfismiðstöðina.
Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista sat hjá við afgreiðsluna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða framkvæmdaáætlun fyrir eignasjóð gatna og fleira.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða framkvæmdaáætlun fyrir B-hluta fyrirtækin: Félagslegar leiguíbúðir, Strætisvagnar Akureyrar og Bifreiðastæðasjóður.Hermann Ingi Arason V-lista vék af fundi kl. 16:50.
Hljóðvistarstyrkir - reglur Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2017110268Rætt um reglur vegna styrkveitinga í glerskipti vegna hljóðvistar við götur.
Verkfundargerðir 2017
Málsnúmer 2017010343Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Drottningarbrautarstígur 5. áfangi: 1.- 4. verkfundur dagsettir 20. september, 4. og 23. október og 1. nóvember 2017.
Klettaborg - íbúðakjarni: 15. verkfundur dagsettur 3. október 2017.
Listasafn: 9.- 10. verkfundur dagsettir 19. og 31. október 2017.
Nökkvi: 18. fundur verkefnisliðs dagsettur 8. september 2017.
Sundlaug Akureyrar rennibrautir og pottar: 17. verkfundur dagsettur 15. nóvember 2017.