Bæjarráð - 3472
- Kl. 08:30 - 12:27
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3472
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Matthías Rögnvaldsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Margrét Kristín Helgadóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Öldrunarheimili Akureyrarbæjar - rekstrarúttekt
Málsnúmer 2015090082Verkefnistillaga vegna úttektar á rekstri ÖA.
Arnar Árnason frá KPMG mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið og skýrði verkefnistillöguna.
Einnig sat Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri fundinn undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir verkefnistillöguna og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við KPMG um úttektina.
Lánsfjármögnun - skuldabréfaútboð
Málsnúmer 2012060019Lagt fram minnisblað dagsett 15. september 2015 frá fjármálastjóra um lántöku ársins.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir að samið verði við Íslensk verðbréf hf um að annast sölu á bréfum fyrir Akureyrarbæ á skuldabréfamarkaði.
Bæjarráð samþykkir að heimila útgáfu skuldabréfa fyrir allt að 650.000.000 króna að nafnverði með stækkun á skráðum flokki, AKU 10 1, hjá Nasdaq OMX á Íslandi, og felur fjármálastjóra að annast útgáfuna.Lindasíða 4-402 - kaup á leiguíbúð
Málsnúmer 20150900585. liður í fundargerð stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar dagsett 11. september 2015:
Lagt fram samþykkt kauptilboð í eignina.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir kauptilboðið.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir kauptilboðið.
Mannauðsráðgjafi - starfslýsing
Málsnúmer 2015090081Lögð fram starfslýsing vegna mannauðsráðgjafa.
Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri og Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið.
Einnig sat Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri fundinn undir þessum lið.Bæjarráð felur starfsmannastjóra að ganga frá starfslýsingu í samræmi við umræður á fundinum og felur honum að auglýsa starfið.
Kerfisbundin endurskoðun starfsmats
Málsnúmer 2015070059Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið og kynnti niðurstöðu kerfisbundinnar endurskoðunar starfsmats sveitarfélaga.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum (sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði)
Málsnúmer 2015090096Lagt fram erindi dagsett 16. september 2015 frá Innanríkisráðuneytinu þar sem óskað er umsagnar um Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum (sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði).
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 25. september nk. á netfangið postur@irr.is.
Sjá nánar á heimasíðu ráðuneytisins: http://www.innanrikisraduneyti.is/frettir/nr/29385
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð ítrekar fyrri bókanir sínar um tekjustofna sveitarfélaga og mikilvægi þess að auka hlut sveitarfélaga í skatttekjum hins opinbera.
Kynning á ábyrgðarmörkum og siðareglum kjörinna fulltrúa og nefndarmanna
Málsnúmer 2014070048Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir reglur um ábyrgðarmörk og siðareglur kjörinna fulltrúa.
Fjárlaganefnd Alþingis - fundir sveitarstjórna með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2015 og þingmönnum kjördæmisins
Málsnúmer 2015090061Erindi dagsett 10. september 2015 þar sem fjárlaganefnd Alþingis býður fulltrúum sveitarfélaga og/eða landshlutasamtaka þeirra til viðtals um fjármál sveitarfélaga í tengslum við vinnu nefndarinnar vegna fjárlagafrumvarps fyrir árið 2016. Fundadagar eru áætlaðir fyrir hádegi dagana 23. september og 5., 7. og 9. október. Auk þess er gert ráð fyrir fjarfundum eftir hádegi 9. október. Mælt er með því að sveitarfélögin nýti sér fjarfundarfyrirkomulag. Hver fundur stendur í 15-20 mínútur. Þeir fulltrúar sem óska eftir fundi eru beðnir um að hafa samband við fulltrúa fjárlaganefndar, Aðalbjörgu Rós Óskarsdóttur á netfanginu aro@althingi.is eins fljótt og verða má.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að panta tíma hjá fjárlaganefnd Alþingis.
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - ársfundur 2015
Málsnúmer 2015090060Erindi dagsett 8. september 2015 frá Innanríkisráðuneytinu þar sem boðað er til ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður miðvikudaginn 23. september nk. kl. 16:00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.
Bæjarráð felur formanni bæjarráðs, Guðmundi Baldvini Guðmundssyni, að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.