Bæjarráð - 3442
- Kl. 09:00 - 09:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3442
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Logi Már Einarsson
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Margrét Kristín Helgadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Bæjarsjóður - yfirlit um rekstur 2014
Málsnúmer 2014050012Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til október 2014.\nDan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Nefndalaun - reglur 2014
Málsnúmer 2014120080Lögð fram tillaga að endurskoðuðum reglum um nefndalaun.
Bæjarráð samþykkir reglurnar.
Ráðningarsamningur bæjarstjóra 2014-2018 - viðauki
Málsnúmer 2014060081Lagður fram viðauki dagsettur 18. desember 2014 við ráðningarsamning bæjarstjóra dags. 18. júní 2014.
Meirihluti bæjarráðs staðfestir viðaukann við ráðningarsamninginn.\nGunnar Gíslason D-lista sat hjá við afgreiðslu.
Grímsey - ferjusiglingar
Málsnúmer 2014120057Lagður fram undirskriftarlisti frá 40 Grímseyingum sem afhentur var bæjarstjóra 10. desember 2014. \nÍ undirskriftarlistanum er óskað eftir að ferjusiglingum verði fjölgað í 5 ferðir á viku í a.m.k. 4 mánuði, þ.e. í maí, júní, júlí og ágúst, vegna mikilla hagsmuna með tilliti til fiskveiða og ferðaþjónustu.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið Grímseyinga og felur bæjarstjóra að vinna að málinu.
Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir veturinn 2014-2015
Málsnúmer 2014100184Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 11. desember 2014. Fundargerðin er í 1 lið.
Bæjarráð vísar fundargerðinni til framkvæmdadeildar.
Íbúalýðræði
Málsnúmer 20141102482. liður í fundargerð bæjarstjórnar dagsett 2. desember 2014:\nGunnar Gíslason D-lista lagði fram tillögu að bókun svohljóðandi:\nBæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkir að fela bæjarráði að móta tillögu að stefnu Akureyrarbæjar í íbúalýðræði og aukinni virkni íbúa í stjórnsýslu bæjarins. \nBæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.
Málið rætt í bæjarráði.
Gegnsæ stjórnsýsla
Málsnúmer 20141003234. liður í fundargerð bæjarstjórnar dagsett 2. desember 2014:\nSóley Björk Stefánsdóttir V-lista lagði fram tillögu að bókun svohljóðandi:\nBæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkir að fela bæjarráði að móta tillögu að stefnu Akureyrarbæjar um að auka gagnsæi í stjórnsýslu bæjarins.\nBæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.
Málið rætt í bæjarráði.