Íþróttaráð - 147
- Kl. 14:00 - 16:00
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 147
Nefndarmenn
- Tryggvi Þór Gunnarssonformaður
- Helga Eymundsdóttir
- Þorvaldur Sigurðsson
- Árni Óðinsson
- Erlingur Kristjánsson
- Dýrleif Skjóldaláheyrnarfulltrúi
- Jón Einar Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
- Ragnheiður Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Ellert Örn Erlingssonfundarritari
Skautafélag Akureyrar - umsókn um framkvæmdir við félagsaðstöðu í Skautahöllinni samhliða framkvæmdum við gólfplötu
Málsnúmer 2014030020Erindi dags. 24. febrúar 2014 frá Sigurði S. Sigurðssyni formanni Skautafélags Akureyrar vegna framkvæmda við félagsaðstöðu í Skautahöllinni samhliða framkvæmdum við gólfplötu 2015.\nSigurður S. Sigurðsson mætti á fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð þakkar Sigurði fyrir komuna.

Íþróttaráð óskar eftir því að Fasteignir Akureyrarbæjar kostnaðargreini hugmyndir Skautafélagsins við framkvæmdir í Skautahöllinni. Kostnaðargreining verður í framhaldinu lögð fyrir íþróttaráð sem tekur þá ákvörðun varðandi beiðni Skautafélagsins.

Rekstrarsamningar aðildarfélaga ÍBA - endurnýjun samninga fyrir árin 2012-2015
Málsnúmer 2011110002Drög að samstarfs- og rekstrarsamningi við Golfklúbb Akureyrar lögð fram til kynningar . Ágúst Jensson framkvæmdarstjóri GA mætti á fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð þakkar Ágústi fyrir komuna.

Meirihluti íþróttaráðs samþykkir fyrirlögð drög að samstarfs- og rekstrarsamningi við Golfklúbb Akureyrar og felur forstöðumanni íþróttamála og formanni að klára samninginn.

Erlingur Kristjánsson B-lista samþykkir ekki drögin og óskar bókað:

60% hækkun frá fyrri samningi er óeðlilega mikil miðað við aðra samninga sem hafa verið gerðir.

Sundlaugar Akureyrar - endurbætur og framtíðarsýn
Málsnúmer 2012020045Íþróttaráð skipaði á fundi sínum 22. mars 2012 tíu manna vinnuhóp sem vinna skyldi tillögu um stefnumótun, endurbætur, viðhald og framkvæmdir í sundlaugum bæjarins á næstu árum.\nStjórn Fasteigna Akureyrarbæjar hefur ákveðið að fjölga fulltrúum í minni vinnuhópi vegna endurnýjunar rennibrautar í Sundlaug Akureyrar frá því íþróttaráð tilnefndi sinn fulltrúa í vinnuhópinn þann 20. febrúar sl. Íþróttaráð skal eiga þar tvo fulltrúa.
Íþróttaráð tilnefnir Þorvald Sigurðsson L-lista í vinnuhóp vegna endurnýjunar rennibrautar.