Bæjarráð - 3514
- Kl. 08:30 - 11:35
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3514
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Logi Már Einarsson
- Gunnar Gíslason
- Preben Jón Pétursson
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Dagný Magnea Harðardóttirskrifstofustjóri Ráðhúss ritaði fundargerð
Menningarfélag Akureyrar - MAK
Málsnúmer 2016030110Farið yfir rekstur Menningarfélags Akureyrar.
Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar og Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri Akureyrarbæjar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð þakkar þeim Þuríði Helgu og Dan fyrir yfirferðina og felur Þuríði Helgu að leggja fram frekari gögn í bæjarráði fimmtudaginn 4. ágúst nk., í samræmi við umræður á fundinum.
Vinabæir og erlend samskipti - niðurstaða vinnuhóps
Málsnúmer 2014090064Farið yfir niðurstöðu vinnuhóps um vinabæi og erlend samskipti.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð vísar niðurstöðum vinnuhópsins til umræðu í bæjarstjórn og óskar eftir því við forseta bæjarstjórar að málið verði tekið til umræðu á fundi bæjarstjórnar 20. september nk.
Vinabæir og erlend samskipti - Denver
Málsnúmer 2014090064Lagt fram til kynningar erindi dagsett 7. júní 2016 frá borgarstjóra Denverborgar þar sem hann kynnir hátíð sem haldin verður í Denverborg dagana 27. og 28. ágúst nk.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Íbúalýðræði og gagnsæ stjórnsýsla
Málsnúmer 2015020002Umræður um tillögur vinnuhóps um íbúalýðræði og gagnsæja stjórnsýslu.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð vísar niðurstöðum vinnuhópsins til umræðu í bæjarstjórn og óskar eftir því við forseta bæjarstjórar að málið verði tekið til umræðu á fundi bæjarstjórnar 6. september nk.
Rafrænar íbúakosningar - tilraunaverkefni
Málsnúmer 2016060157Lagt fram til kynningar erindi dagsett 24. júní 2016 frá innanríkisráðuneytinu varðandi tilraunaverkefni um rafrænar íbúakosningar.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Ferðamálastofa - ósk um samstarf vegna mats og kortlagningar viðkomustaða ferðafólks
Málsnúmer 2016060186Lagt fram erindi dagsett 29. júní 2016 frá Ólöfu Ýrr Atladóttur ferðamálastjóra þar sem óskað er eftir samstarfi við Akureyrarbæ um framhald verkefnis sem gengið hefur undir nafninu: Kortlagning auðlinda ferðaþjónustunnar. Fyrsti áfangi þess var unninn á árinu 2014.
Bæjarráð samþykkir samstarf við Ferðamálastofu um verkefnið og felur aðstoðarmanni bæjarstjóra að svara erindinu.
Hverfisnefnd Lunda- og Gerðahverfis - fundargerð
Málsnúmer 2016010034Lögð fram fundargerð 59. fundar hverfisnefndar Lunda- og Gerðahverfis dagsett 5. júlí 2016.
Fundargerðina má finna á netslóðinni:
http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/lunda-og-gerdahverfi/fundargerdirBæjarráð vísar 1., 2., 3. lið 4), 4. og 5. lið til framkvæmdadeildar, 3. lið 1, 2 og 3 til skipulagsdeildar, önnur mál lögð fram til kynningar í bæjarráði.