Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 702
- Kl. 13:15 - 15:15
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 702
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
- Björn Jóhannsson
Halldóruhagi 4 B - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2018110153Erindi dagsett 15. nóvember 2018 þar sem Steinmar Heiðar Rögnvaldsson fyrir hönd BF Bygginga ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi 4 B á lóð nr. 4 við Halldóruhaga. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Steinmar Heiðar Rögnvaldsson. Innkomnar nýjar teikningar 4. desember 2018.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Halldóruhagi 4 A - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2018110180Erindi dagsett 19. nóvember 2018 þar sem Steinmar Heiðar Rögnvaldsson fyrir hönd BF Bygginga ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi 4 A á lóð nr. 4 við Halldóruhaga. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Steinmar Heiðar Rögnvaldsson. Innkomnar nýjar teikningar 4. desember 2018.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Geirþrúðarhagi 4 A - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2018090107Erindi dagsett 21. nóvember 2018 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Fjölnis ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir 2ja hæða fjölbýlishúsi á lóð nr. 4 við Geirþrúðarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 26. nóvember 2018 og 5. desember 2018.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Geirþrúðarhagi 4 B - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2018090170Erindi dagsett 21. nóvember 2018 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Fjölnis ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir 2ja hæða fjölbýlishúsi á lóð nr. 4 við Geirþrúðarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 26. nóvember 2018 og 5. desember 2018.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Goðanes 12 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2018110074Erindi dagsett 7. nóvember 2018 þar sem Björn Guðbrandsson fyrir hönd Festingar sækir um byggingarleyfi fyrir atvinnuhúsnæði á lóð nr. 12 við Goðanes. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Björn Guðbrandsson. Innkomnar nýjar teikningar 26. nóvember 2018.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Holtaland 2, Hálönd - umsókn um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi
Málsnúmer 2016080013Erindi dagsett 28. nóvember 2018 þar sem Ingólfur Fr. Guðmundsson fyrir hönd SS Byggis ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóð nr. 2 við Holtaland. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Byggingafulltrúi hafnar erindinu þar sem húsið er ekki í samræmi við deiliskipulag.
Þingvallastræti 23 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum
Málsnúmer 2018110306Erindi dagsett 28. nóvember 2018 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Þingvangs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 23 við Þingvallastræti. Sótt eru um leyfi til að bæta við goskútageymslu, vöruhurð og breytingu á flóttaleið frá starfsmannaaðstöðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar nýjar teikningar 6. desember 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.