Samfélags- og mannréttindaráð - 74
- Kl. 17:00 - 18:30
- Trója austur 2. hæð Rósenborg
- Fundur nr. 74
Nefndarmenn
- Hlín Bolladóttirformaður
- Brynjar Davíðsson
- Heimir Haraldsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Guðlaug Kristinsdóttir
- Katrín Björg Ríkarðsdóttirfundarritari
Fjárhagsáætlun 2011 - samfélags- og mannréttindaráð
Málsnúmer 2010090135Unnið að gerð fjárhagsáætlunar fyrir þá málaflokka sem heyra undir samfélags- og mannréttindaráð.
<DIV><DIV>Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs.</DIV></DIV>
Gjaldskrá Rósenborgar 2011
Málsnúmer 2010100064Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir útleigu kennslustofa og sala í Rósenborg.
<DIV><DIV>Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir gjaldskrána fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs.</DIV></DIV>
Fræðslufyrirlestrar um einelti á landsvísu - samstarf
Málsnúmer 2010090039Borgarafundur um einelti var haldinn í Brekkuskóla 6. október sl. á vegum Heimilis og skóla, Liðsmanna Jerico, Olweusaráætlunarinnar og Ungmennaráðs SAFT með stuðningi Akureyrarbæjar o.fl.
Samfélags- og mannréttindaráð lýsir ánægju sinni með borgarafundinn og óskar eftir samstarfi við aðrar nefndir bæjarins um að halda málefninu á lofti.