Stjórn Akureyrarstofu - 187
- Kl. 15:00 - 16:45
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 187
Nefndarmenn
- Logi Már Einarssonformaður
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
Starfsmenn
- Skúli Gautasonframkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Gásakaupstaður 2015
Málsnúmer 2015050010Kristín Sóley Björnsdóttir og Haraldur Þór Egilsson komu á fundinn og kynntu málefni Gásakaupstaðar ses.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Kristínu Sóleyju og Haraldi Þór fyrir komuna.
Anna Hildur Guðmundsdóttir L-lista vék af fundi kl. 15:45.
Eva Hrund Einarsdóttir D-lista mætti á fundinn kl. 16:00.Laxdalshús - útleiga
Málsnúmer 2015010247Lagt fram bréf dagsett 4. febrúar 2015 frá Maríu Jónu Jónsdóttur og Hallgrími Ingólfssyni með hugmyndum um nýtingu á Laxdalshúsi.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fela framkvæmdastjóra Akureyrarstofu að ganga til viðræðna við Maríu Jónu Jónsdóttur og Hallgrím Ingólfsson í samræmi við umræður á fundinum og með vísan í auglýsingu um útleigu hússins.
Móttaka ferðamanna í Akureyrarkirkju
Málsnúmer 2015050018Lagt fram til kynningar bréf frá Akureyrarkirkju dagsett 29. apríl 2015 um móttöku ferðamanna í Akureyrarkirkju.
Útþrá eftir Listakonuna í Fjörunni - tillaga að útilistaverki
Málsnúmer 2015030117Beiðni um að verk eftir Elísabetu Geirmundsdóttur verði steypt í brons.
Afgreiðslu erindisins frestað.