Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 718
- Kl. 14:00 - 15:30
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 718
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
- Björn Jóhannsson
Rangárvellir 2 , hús nr. 7 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2018040125Erindi dagsett 4. apríl 2019 þar sem Anton Örn Brynjarsson fyrir hönd Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun húss nr. 7 við Rangárvelli 2, um þrjú bil til suðurs. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
KA hús Dalsbraut - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum í búningsklefum og snyrtingum
Málsnúmer 2019040021Erindi dagsett 29. mars 2019 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Akureyrarbæjar, kt. 410169-6229, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á KA húsi við Dalsbraut. Breytingarnar snúa að búningsklefum, sturtum og snyrtingum. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Geirþrúðarhagi 2 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2019040186Erindi dagsett 9. apríl 2019 þar sem Tryggvi Tryggvason hjá Opus fyrir hönd HeiðGuðByggis ehf., kt. 610711-0570, sækir um leyfi til að hafa jarðvegsskipti á lóð nr. 2 við Geirþrúðarhaga. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir jarðvegsskipti fyrir húsi í samræmi við fyrirliggjandi afstöðumynd, sem er í samræmi við samþykkt deiliskipulag.
Glerárskóli við Höfðahlíð - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum
Málsnúmer 2019040051Erindi dagsett 29. mars 2019 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Akureyrarbæjar, kt. 410169-6229, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi Glerárskóla við Höfðahlíð. Fyrirhugaðar breytingar eru innan- og utanhúss og útlistaðar á fylgiskjali umsóknar og meðfylgjandi teikningum eftir Ágúst Hafsteinsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Beykilundur 11, stækkun - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2019040096Erindi dagsett 3. apríl 2019 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Hildigunnar Rutar Jónsdóttur sækir um að byggja viðbyggingu við hús nr. 11 við Beykilund.
Byggingarfulltrúi óskar eftir umsögn skipulagsráðs um erindið.
Móasíða 1 - umsókn um byggingarleyfi 1. hæð og kjallari
Málsnúmer 2019020314Erindi dagsett 19. febrúar 2019 þar sem Jón Stefán Einarsson fyrir hönd Unique Chillfresh Iceland ehf., kt. 510414-1280, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á 1. hæð og kjallara í húsi nr. 1 við Móasíðu. Fyrirhugað er að gera fjórar íbúðir á 1. hæð og geymslur í kjallara. Meðfylgjandi er samþykki annarra eigenda í húsinu og teikningar eftir Jón Stefán Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 10. apríl 2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.